Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 33
Arsrit Torfhildar
kapphlaupi.
Ungir Hestlendingar eru „menntaðir“ í skapstillingu, iðni,
líkamsrækt og hreinlæti. Skoðanaskipti þekkjast ekki enda
óþarfi því skynsemin gefur rétta svarið við öllum vandamálum.
Lygi er óskynsamJeg, svo og allt illt og því eru ekki einu sinni
til orð yfir slíka hluti. Málum sínum ráða Hestlendingar fjórða
hvert ár á einskonar þingi. Þar eru aðallega athugaðar birgðir
landshlutanna af matvælum, kúm, Jahúum og afkvæmum og
bætt er úr skorti ef einhver er.
Hestlendingarnir þrælka mannskepnurnar, eöa Jahúana, í
landi sínu. Þeir hata þá og fyrirlíta, því Jahúarnir eru ekki
skynsemisverur og auk þess lykta þeir og eru hávaðasamir.
Eina deilan sem upp kom meðal Hestlendinga snerist einmitt
um það hvort útrýma ætti Jahúunum eða ekki. Ein af rökunum
með útrýmingu voru að Jahúarnir væru ekki upprunnir í
Hestalandi, heldur hefðu þeir komið sem aðkomuskepnur. í
þessari deilu kom einnig upp sá möguleiki, ættaður frá
mannskepnunni Gulliver, að gelda alla Jahúa. Þannig yrðu þeir
auótamdari og auóvelt að halda þeim í skefjum.
SKUGGAR SKYNSEMISRÍKISINS
Er þetta ríki skynseminnar, þessi útilokun tilfinninga,
rígbundin stéttaskipting, tilbreytingarleysi og endalaus vellíðan,
eftirsóknarvert sæluríki fyrir mannkyn? Ég tel svarió vera
hiklaust nei. Hér er eitthvað annaó á ferð.
Skynsemisríki Hestlendinga er pólitísk spásögn Swifts,
byggð á þeim hugmyndastraumum, sem ríkjandi voru í samtíð
hans. Þetta er viðvörun manns, sem skynjaði skugga
skynsemisríkisins. Sagan kennir okkur nú að þessi viðvörun var
réttmæt. Lítum nánar á þær hugmyndir um mannlegt siðferði,
og samfélag, sem spruttu upp úr skynsemishyggjunni.
31
L