Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 36

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Síða 36
Arsrit Torfhildar einingar til að mæla ánægju eða óhamingju, sem leiðir af athöfnum. Þannig átti að vera hægt að vega og meta athafnir vísindalega, út frá skynseminni einni saman. Það sem skortir í þetta módel Benthams er hliðstætt við það sem skortir í skynsemisríki Hestlendinga: hugmynd um þroska og gildi einstaklingsins. Ekki er víst aó saman fari þroski og manngildi og hámarksánægja. Spurningin hlýtur að snúast um það hverju sé fórnað. Hestlendingar lifa við öryggi og stöðugleika. Allt er í mjög „skynsamlegum“ og föstum skorðum, séð frá sjónarhóli Hestlendinga sjálfra. Myndum við yfirgefa fyrir fullt og allt basl okkar í mannlegu samfélagi til að lifa líkt og Hestlendingar? Samkvæmt nytjastefnu Benthams er markmið skynsemisverunnar hámarksvellíðan. Myndum við tengja okkur vió vellíóunarvél, sem veitti okkur alla hugsanlega vellíðan, ef við ættum aldrei afturkvæmt? Svarið við báðum þessum spurningum er líklega neitandi. Stephan G. Stephansson kvað eitt sinn svo: Ég veit þaó er lánsæld að lifa og njóta, að leika og hvíla sem hugurinn kýs. En mér finnst það stærra að stríða og brjóta í stórhríðum ævinnar mannrauna ís. Þaó er eitthvað sem vantar í skynsemisríki hestlendinga, eitthvað sem snertir það aó vera maður. Gulhver valdi að fylgja Hestlendingum. Það mat hans að skynsemin væri æðsta takmark mannsins olli ákvörðun hans og afleiðingamar urðu margvíslegar. KYNÞÁTTAHATARINN GDLLIVER Var val Gullivers honum skaðlegt? Þetta er stór spurning og vert að líta nánar á nokkrar af afleiðingum þess. Gulliver 34

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.