Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 54

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 54
Arsrit Torfhildar ritdómsins. Jónas fer í kringum viðfangsefnið. Skrefið. árásin á hefðina er aldrei stigið til fulls. Hann kallar dauða yfir hefðina án þess að ráðast beint á hana, talar þess í stað um sjálfan sig, ýtir hefðinni frá sér, hjálpar henni við að hopa, „elude“. Hér er einnig athyglisverð afstaða Jónasar gagnvart rímunum/hefðinni, þar sem hann talar ekki aðeins um rímurnar sem tákn um hefðina, heldur og að þær ráðist á hefðina, spilli því sem hann vill hafa hreint og fagurt. Um leið og hann kallar dauða yfir föður sinn, tekur hann fyrir ást sína á honum. Kristeva orðar þetta svo: „A man experiences love and simultaneously puts it to the test on the death of his father.“5 Við þessa sjálfsskoðun, gerir hann sér grein fyrir.....the sublimated obscenity that portrays him as consubstantial with his father, but only the decayed cadaver of his father . . ,“6 Feitletrun er á mína ábyrgð, til að vekja sérstaka athygli á sameiginlegum uppruna Jónasar og Hefðarinnar/ föðurins. Til þess að öðlast eigið sjálfstætt líf þarf hann því að útiloka föður sinn, eða frekar, þar sem hann hefur þegar upplifað dauða hans með sjálfum sér og vegna þess að hann gerir sér grein fyrir því að hann og faðir hans eru af sama holdi, og verða í yfirfærðri merkingu að sama líki, að útiloka líkið af honum. Hefðin verður andi föðurins, rímurnar verða líkið, Jónas útilokar rímurnar. Þannig sannfærir hann sjálfan sig um sjálfstæði sitt. Það sem þá gerist, samkvæmt Kristevu, er að „Assumption of self through the dead father turns the . . . writer into a father in spite of himself, a father under protest, a false father who doesn’t want to be a father, but nonetheless believes in being one tense in the elegance of permanent mourning"7 Jónas verður að nýjum föður, og kallar yfir sig með því boð og bönn, lög og reglur karlveldis sem hann er að reyna að losna við. Hann er kominn í hring, þar sem þrá hans eftir dauða föðurins er að snúast upp í 52

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.