Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 55

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 55
Arsrit Torfhildar þrá eftir eigin dauða, og hann óttast þessa þrá. Þar sem óttinn við þessa þrá (sem jafnvel mætti kalla líkþrá) er mestur, brýst hann fram í ummælum, eftir tal um kenningar, þar sem því er lýst yfir að verið geti að þær hafi ekki verið allar skildar . . rjettilega, og sumar eigi að þíða eitthvað annað. Jeg þori ekkjert um það að segja; kvennfólkjið verður að skjera úr því.“(26) Hér brýst fram óttinn við hefðina, óttinn við lesandann/ dauðann, óttinn við líkið af föðurnum, en ekki síst óttinn við það sem hann þráir í stað hins reglubundna feðraveldis, kvenfólkið. III KVENNFÓLKJIÐ. í rímum af Tistrani og Indíönu er talað til kvenna. Mansöngvarnir eru sungnir til kvenna og rímunum þannig beint að konum sem viðtakendahópi. Með orðum sínum um dómsúrskurð kvenfólksins talar Jónas til sama hóps og Sigurður. Hann talar til þess heims sem hann þráir, en óttast, af hæðni sem undirstrikar ótta hans. Hann veit sem er að sá heimur er andstæður þeim heimi sem hann hefur kallað yfir sig með því að skilgreina sjálfan sig í gegnum dauða föður síns. Með þessum orðum er horfið frá ritdómnum sjálfum og úrskurðurinn lagður í hendur þeim sem eru fyrst og fremst viðtakendumir, „kvennfólkjið“. Ritdómurinn verður ekki lengur neinn dómur heldur varnarræða þess sem setur sig upp á móti hefðinni sem skóp hann en getur ekki gert það nema á þann eina hátt að nota tungumálið með öllum þeim gildum og hefðum sem það inniheldur. Hann notar aðferðir föðurins til að ráðast á föðurinn og við þá iðju reynir hann að hæðast að því sem er lausnin, hæðast að því sem hann þráir og er það eina sem honum býðst til lausnar úr vítahring feðraveldisins. Þama 53

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.