Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 70

Ársrit Torfhildar - 01.04.1989, Page 70
Arsrit Torfhildar Allir þeir, sem ekki gera þetta, eru skrýtnir og viðrini. Flestir hinna eiga innst inni þá ósk að vera líka bara skrýtnir og viðrini, en þora ekki að viðurkenna það - ekki einu sinni fyrir sjálfum sér. En samt er tilgangsleysi og innantóm þessa þeim flestum vel ljóst, og allstaðar er lífsleiðinn ljóslifandi. Þannig er hlutunum varið. Svo allt í einu er staður varanleikans, ef til vill hinn eini í lífi þeirra, undirlagður hraðfara breytingum. Allir líta með eftirsjá til horfinna daga, og hver sakar annan um það, hvernig komið er, en samvinna til bóta er lítil sem engin. Sú samhyggð og sá skilningur, sem kunna að vera fyrir hendi hverfa fyrir tortryggni og andúð. Söknuður og vonbrigði herja á hjörtu manna. Hver á sökina, og hvað á að gera? Sökin er tíðarandans og tímanlegrar uppgjafar hvers einstaks einstaklings sem slíks og sem meðbróður annarra slíkra í baráttunni um tilveru sjálfs sín sem áframhaldandi þroskaðrar vitsmunaveru. Verður þess þá langt að bíða, að mannfólkið gefist algerlega upp á sjálfu sér? Já, þess verður langt að bíða, því að það verður aldrei. Það vrður aldrei, af því að allt fólk er, þrátt fyrir allt, sannar manneskjur, aðeins mismunandi sannar, en sannar samt. Hvað á svo að gera? Tímanlegar aðgerðir eru margar aðgengilegar. En bezt er hin erfiðasta, það er samúð, skilningur og samvinna æsku og elli. En þar sem engin bein fjöldaframleiðsla getur átt sér stað á þessum afurðum mannsandans er lausnarinnar langt að bíða, og mikils verður að vænta af hverjum einstökum, og sem betur fer - mikils má vænta. En þetta tekur allt sinn tíma. Ekki hafa svipuð vandamál fyrri tíma verið leyst á svipstundu, og svo mun vera enn í dag. En hin raunverulega og varanlega lausn er víðs fjarri - 68

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.