Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Page 22

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Page 22
Síðan rekur hann efnistök skáldsins og enn og aftur kvartar hann yfir efnisvali sem "verður að teljast... heldur einlitt og fábrotið." Gyrðir dvelur of mikið við hugmyndarheim barnsins, segir ritdómarinn, og það er ekki nógu gott, því: Börn eru ágæt, en flest börn verða nú einhvern tímann fullorðin. Og þá fara þau að hugsa öðruvísi en áður. Ætli menn að ná marktækum árangri sem skáld þá geta þeir ekki endalaust leikið sér með eitt saman hugmyndarflug barna. Þeir verða eiginlega að gera það sem venjulega er kallað að komast til fulls þroska. Að minnsta kosti ef þeir ætla sér að gera eitthvað að ráði af því að setja saman bækur handa fullorðnu fólki. Og sami ritdómari sagði um "barnabókina" Gangandi íkorna að það væri kannski þokkaleg bók, en bætti við að röskur höfundur hefði nú getað gert betur. Eins og mönnum er efiaust farið að gruna, þá er álit mitt á ritdómaranum Eysteini ekki mikið. Það eina sem ég get huggað mig við er að maðurinn skrifar í Tímann; blað sem flestir gleyma reglulega að sé til þar til þeir lenda á ýmiskonar biðstofum. sjö Og þá er það Þjóðviljinn. Fyrstan af þremur ritdómurum kalla ég fram Magnús Gestsson. Magnús er, eins og margir gagnrýnendur, skáld. Og dómarnir bera þess merki, en því miður í neikvæðum skilningi. Þar á ég við skort á yfirvegun og rökhugsun, tilfinningar ráða ríkjum; það mætti sprauta smá fræðimanni í hann. En tilfinningamönnum er gjarnt að taka afstöðu sem og Magnús oft gerir. Ef honum finnst bókin slæm, þá segir hann það hreint út. Sama hvort um er að ræða fyrstu bók höfundar eður ei: Þessi ljóðabók biður mann ekki að taki sig upp og vísa ég þar til bókakápunnar sem er ein sú ljótasta sem ég hef séð. 25 Þannig byrjar dómur hans um bók Bjarna Bjarnasonar, Upphafið. Síðan birtir hann ljóðdæmi og fellir dóma: 20

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.