Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Qupperneq 28

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Qupperneq 28
Þessi kenning nær vitanlega ekki til þeirra nýliða sem nær einvörðungu hafa lesið ljóð eftir sjálfa sig. Steinar Jóhannsson sagði frá þvf í viðtali um daginn að Bob Dylan og Ari Gísli Bragason væru helstu fyrirmyndir hans, en að auki hefði hann lesið eitt ljóð Sigfúsar Daðasonar. Það hæfir manni ágætlega að deyja, sér til mikillar ánægju. Þeir Bob og Ari Gísii eru alls góðs maklegir en nokkur fleiri skáld mætti ungur höfundur samt lesa sér til gagns og gamans. Til að mynda Sigfús Daðason umfram þetta eina ljóð. Hér er þess að gæta að Steinar Jóhannsson hefur greinilega mikla unun af því að setja saman ljóð og í sjálfu sér engin ástæða til að raska þeirri ánægju með því að neyða hann til að lesa nokkur vel valin skáld. Nema þá helst hann ætli sér sæti á skáldabekk. Það er skemmst frá því að segja að af um þrjátíu ljóðum í bókinni eru sárafá sem eitthvað er varið í... Mestanpart er skáldskapurinn rislítill og tíðindaleysið er allsráðandi. Eflaust kynnu margir að setja hér út á kaldhæðni ritdómarans; hér eru orð sem stinga og glotta illþyrmislega. En undirritaður er líklega vondur maður og hefur gaman af. Dómar Hrafns eru mislangir; sumir ekki undir hálfri síðu, aðrir töluvert styttri. Ef bókin er góð, að áliti ritdómarans, þá teygist úr dómnum. Þannig er umfjöllunin um bók Matthíasar Jóhannessens, Dagur af degi, í lengri kantinum.34 Hrafn hrífst af bókinni, enda allgott skáld bak við hana. En þrátt fyrir hrifningu og greinilega virðingu fyrir skáldinu, þegir hann ekki yfir því sem honum þykir miður: Þannig er litanotkun hans á stundum truflandi, jafn flinkur málari þarf ekki að hlaða um sig orðum eins og seglhvítur, kviðgulur, fjallhvítur, klógulur, vængblátt, auðnarhvítt, laufgrænt, hrafnblátt, haustrautt svo dæmi séu tekin af handahófi - án þess að með því sé lagður dómur á kvæðin sem þau eru tekin úr. Nú verð ég líklega að grafa eftir göllum hjá Hrafni; menn gætu annars farið að hvískra um mútur, vinatengsl eða þess háttar. Hrafn á það til að vera fljótfær, gengur full rösklega fram í því að skrifa dóminn. Sem dæmi nefni ég gagnrýnina um bók Gyrðis, Tvö tungl.35 Að mörgu leyti er þetta glimrandi dómur. Hann rekur feril skáldsins og tekst að draga upp góða og skýra mynd af 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.