Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 45
Tilbrigði við Tígrísdýr eftir Frans Kafka eftir Eirík Guðmundsson
Um hvað er þessi saga? Hún er um tígrisdýr. Hvaða tígrisdýr? Bara eitthvað
tígrisdýr. Hvað kemur fyrir þetta tígrisdýr? Það er sent í tamningu. Hver ætlar
að temja tígrisdýrið? Hinn frægi Burson dýratemjari sem vill vera einn með
dýrunum þegar hann hittir þau í fyrsta skipti. Hvar á að temja tígrisdýrið? í
æfingabúrinu sem er á stærð við samkomusal. Hvar er æfingabúrið? Það er
langt utan við bæinn. Hvaða bæ? Ég veit það ekki. Hvað skeður svo?
Tígrisdýrið sofnar skyndilega þegar Burson dýratemjari er að skoða það, enda
nýbúið að borða. Endar sagan svona? Já, hún endar bara svona. Er þetta
skemmtileg saga? Já, nei, jú, hún er ágæt. Hvers vegna? Æi, það er of langt mál
að fara út í það. Hún er allavega ekki leiðinleg? Nei, hún er ekki leiðinleg. Af
hverju er hún ekki leiðinleg? Ja manni leiðist allavega ekki á meðan maður les
hana af því að hún er svo stutt. Gætirðu hugsað þér að lesa hana aftur? Já,
tvímælalaust. En tvisvar í viðbót? Já já af því að hún er svo stutt og svo er hún
líka ágæt. Finnst þér Burson dýratemjari vera skemmtileg persóna? Já já, hann
er ágætur, annars veit maður frekar lítið um hann. Deyr tígrisdýrið í lok
sögunnar? Nei, andskotinn, það bara sofnar. Gætirðu hugsað þér að lesa
söguna þrisvar í viðbót? Já ætli það ekki, maður les nú annað eins. Heldurðu
að Burson dýratemjara takist að temja tígrisdýrið? Það er ómögulegt að segja.
Maður getur ekkert fullyrt um það. Hvar var tígrisdýrið áður en það var fært
til Bursons dýratemjara? Ég veit það ekki. Gætirðu hugsað þér að lesa þessa
sögu íjórum sinnum í viðbót? Já, kannski á tveimur dögum. Eftir hvern er
sagan? Hún er eftir einhvern Franz Kafka. Hver er þessi Franz Kafka? Æi hann
var gyðingur og skrifaði sögur eins og til dæmis þessa um tígrisdýrið sem fór í
tamningu hjá Burson dýratemjara en svo sofnaði það skyndilega.
43