Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Page 64
vélritaþauupp fyrir þig." Ég samþykkti og fljótlega var ég kominn
með ljóðin til baka, vélrituð.
Um þessar mundir leit oft við rauðhærður, að verða sköllóttur
maður, sem var með hátt glansandi enni, vandvirkur og
vinalegur og stöðugt með dauft glott á vörum. Hann vann sem
framkvæmdastjóri skrifstofuhúsgagna-og birgðafyrirtækis og
safnaði sjaldgæfum bókum. Hann hét John Martin. Hann hafði
gefið út nokkur af ljóðum mínum sem einblöðunga. Á meðan ég
sat á móti honum í eldhúsinu mínu, drakk bjór og áritaði
einblöðungana skrifaði hann ávísanir fyrir mig. Þetta var
upphafið að "Black Sparrow Press", forlags sem fljótlega átti eftir
að hefja útgáfu stórs hluta amerískrar avant-garde ljóðlistar, en
hvorugur okkar vissi það þá.
Ég sýndi John Martin ljóðin sem Thomas hafði vélritað upp
eftir segulbandinu fyrir mig. Ég hafði skoðað afritið hans og hann
hafði unnið vandvirkt, skekkjulaust starf. John Martin tók ljóðin
með sér heim og hringdi í mig nokkrum dögum síðar. "Þarna
hefurðu bók og ég ætla sjálfur að gefa hana út." Þannig voru nærri
týnd ljóð fundin aftur og prentuð í bókarformi og "Svarti
spörfuglinn" (The Black Sparrow) hóf flugið. Ég kallaði bókina
"At terror street and agony way."
Tilvitnanaskrá
(1) Charles Bukowski: Mocking Bird Wish Me Luck, úr ljóðinu "a free 25
page booklet"? Black Sparrow Press. Santa Rosa 1989 (fyrsta útgáfa 1972).
(2) Charles Bukowski: Hot Water Music. Black Sparrow Press. Santa Rosa
1987 (fyrsta útgáfa 1983).
(3) Charles Bukowski: Burning in Water Drowning in Flame. Black Sparrow
Press. Santa Rosa 1986 (fyrsta útgáfa 1974).
62