Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 65

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 65
Brian Patten Játningar Nonna litla Þennan morgunn frekar ungur og óvita fékk ég lánaða vélbyssu sem faðir minn hafði falið síðan úr stríðinu, fór út, og útmáði ótal litla óvini. Síðan þá hef ég ekki snúið heim. Þennan morgunn lögregluhópar með sporhunda reika um borgina með mynd af mér stimplaða á heilann, spyrjandi: "Hefurðu séð hann? Hann er sjö ára gamall, hefur gaman af Plútó, Mikka mús og Jóka birni, hafiði séð hann, einhversstaðar?" Þennan morgunn sit aleinn á ókunnugum leikvelli muldrandi þú hefur klúðrað þessu, þú hefur klúðrað þessu aftur og aftur við sjálfan mig Hugsa, hvað get ég gert get ekkert gert, sporhundarnir þefa mig uppi, þeir hafa sleikjóinn minn. Jón Stefánsson og Einar Falur Ingólfsson þýddu úr ensku. 63

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.