Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Síða 73

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Síða 73
til þess fallin að skýra sérstöðu táknsæisins. Eitt af þessum atriðum er óánægja táknsæu höfundanna með þær forsendur sem lágu skáldritun nýraunsæisins til grundvallar. Það eru að vísu engar fréttir að ný stefna í bókmenntum sé að einhverju leyti skilgreind út frá andstöðunni við þá fyrri, hún sé með öðrum orðum það sem hún er ekki. En bak við þessa óánægju glittir einnig í óánægju með hlutverk skáldskaparins í þjóðfélaginu. Skáldskapur nýraunsæisins var að áliti manna eins og Einars Kárasonar 4 allt of bundinn hinum hversdagslega raunveruleika og sökumþess yrðu vinnubrögðin flatneskjuleg og metnaðarlítil. Höfundurinn var ekki að skrifa skáldskap heldur fremur skýrslu af ástandinu í þjóðfélaginu, hann þurfti ekki að takast á við miðilinn; tungumálið. Að áliti Einars er skáldskapurinn ekki félagslegt erindi heldur nýstárleg frásögn sem greinir frá skemmtilegum og áhugaverðum persónum sem halda lesandanum við efnið skáldskaparins vegna en ekki sökum þess að frásögnin forðast að leggja hindranir í götu hans. Þessi atriði skipta hann því meginmáli í umræðunni um hvað skáldskapur í raun sé og hvað hann eigi ekki að vera. Það hlutverk sem hann ætlar skáldsögum sínum og annarra höfunda sem hafa svipaða afstöðu gagnvart þessari bókmenntategund er að færa bókmenntunum skáldskapinn aftur. Skáldskapurinn hafi lent í öðru sæti á áttunda áratugnum og nú sé kominn tími til að hann taki við fyrsta sætinu aftur. Svipuð sjónarmið koma fram í grein sem Matthías Viðar Sæmundsson ritaði í tímaritið Storð 5 fyrr á árinu 1983 og einnig í viðtali sem tekið var við hann þá um haustið \ tilefni af greininni 6. Meginhugsun bæði greinarinnar og viðtalsins er sú skoðun Matthíasar að forsendur nýraunsæisins séu óhæfar til að mynda grundvöll fyrir góðan skáldskap. Til að mynda slíkar forsendur þarf margt að koma til og fráhvarfið frá itýraunsæinu eitt og sér skapar þær ekki sjálfkrafa. Það nægir ekkj að skipta á nýraunsæi fyrir módernisma, að halda fram merkingarbroti gegn heildsteyptri merkingarmynd, því eins og Matthías sér glögglega, byggir þróunin ekki á slíkri díalektík. Aðstæðurnar eins og þær blöstu við um þetta leyti sýndu að nýraunsæið var að tærast upp innan frá. Höfundar litu á ríkjandi 71
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.