Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 76

Ársrit Torfhildar - 01.11.1990, Side 76
erfiðara fyrir að nálgast textann líkt og í þeim róttæku tilraunaverkum sem skrifuð voru á sjöunda áratugnum og síðar. Lesendum er enn ætlaður auðveldur aðgangur að textanum líkt og í nýraunsæinu, og því sameinast stefnurnar í raun um áhersluatriði að þessu leyti. Forsendur þessa lesendaáhuga eru þó mjög ólíkar þar sem afstaða nýraunsæju höfundanna er byggð á þeirri skoðun að sósíalískir eða félgslega meðvitaðir höfundar ættu að reyna að skilja þau öfl sem byggju að baki yfirborðsmynd veruleikans og miðla þeirri rannsókn sinni í listrænum búningi, skiljanlegum sem flestum lesendum. Öfugt við "krossgátubókmenntir" módernismans, sem nýraunsæinu var upphaflega att gegn, átti merking slíkra bókmennta að vera augljós og aðgangur að þeim að vera sem auðveldastur 8. Forsendur táknsæju höfundanna voru á hinn bóginn að halda lesandanum við efnið, tryggja áhuga hans og viðurvist með ákveðnum þáttum sem voru innbyggðir í textann. Þessi afstaða birtist meðal annars í vilja margra höfunda til að skrifa aðgengileg verk sem samt voru krefjandi, en hér á landi hefur aldrei komiö til virkilegrar "close that gap" hreyfingar. Höfundar sem meðvitað gera út á lág- og hámenningarform samtímis eins og Ishmael Reed eða Umberto Eco, hafa verið fáir hér um slóðir. Aðgengileiki íslensku skáldsagnanna sem eru þessu marki brenndar virðist fyrst og fremst hafa orsakast af því að þær héldu formgerðareinkennum nýraunsæisins. EINKAMÁL DJÖFLAEYJUNNAR Þetta atriði verður ekki að fullu skýrt nema með samanburði á táknsæu og nýraunsæu verki. Eins og sagði í upphafi verða hér tekin fyrir Einkamál Stefaníu og Þar sem djöflaeyjan rís og tekur samanburðurinn til athugunar á niðurstöðum táknmiða og táknmynda á hinum staðkvæmu (paradigmatísku) og raðkvæmu (syntagmatísku) ásum tungumálsins í textanum. Roman Jakobson tengdi þessi hugtök, sem upphaflega eru komin frá Saussure, við mælskufræðiheitin myndhverfingu og 74

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.