Upp í vindinn - 01.05.2011, Síða 24

Upp í vindinn - 01.05.2011, Síða 24
Verkfræðistúdentar í Hveragerði á mælinganámskeiði sumarið 1957. Frá vinstri til hægri: Ulfar Haraldsson (látinn), Júlíus Sólnes, Sigurþór Tómasson, Gísli Sigfreðsson (látinn), Þór Gregor Þorsteinsson (látinn), Haukur Frímannson, Kári Tryggvason skólastjóri, dóttir Kára, matráðskona, Stefán Hermannsson, Þórir Hilmarsson (látinn), Sigmundur Freysteinsson, Guðmundur Halldórsson, Helgi Sigvaldason, Bragi Guðmundsson, Jandmælingaverkfræðingur og aðstoðarkennari, Haukur Jóhannsson, Gunnar H. Pálsson. sem fylgist með gæðum verkfræðikennslu og rannsókna við bandaríska háskóla, til að meta verkfræðinám á Islandi. Nefnd bandarískra sérfræðinga á vegum ABET kom hingað til lands og kynnti sér allar aðstæður, m.a. skólakerfi okkar og tók viðtöl við flestalla kennara og einnig nemendur. Nefndin skilaði ítarlegri skýrslu um niðurstöður sínar haustið 1993. Þær voru helztar: Verkfræðinám í háum gæðaflokki Kennarar áhugasamir og vel menntaðir Nemendur duglegir og sérlega einbeittir Námið jafngilt eða meira en hliðstætt grunnnám („undergraduate“ nám) í Bandaríkjunum. Liggur mitt á milli BS og MS náms við bandaríska verkfræðiháskóla/deildir ABET nefndin taldi enn fremur, að menntaskólanám á Islandi fullnægði kröfum um tungumálakunnáttu og félagsfræðilegan hluta grunnnáms verkfræðinga í Bandaríkjunum. Nefndin kom þó með ýmsar neikvæðar athugasemdir. Vakti m.a. athygli á bágri aðstöðu deildarinnar og taldi, að bókasafnið uppfyllti ekki lágmarkskröfur til slíkra safna. Þá þyrfti að bæta tilraunaaðstöðu nemenda og aðstöðu starfsfólks við deildina. Þetta varð til þess, að verulegar umbætur og breytingar voru gerðar á verkfræðináminu á næstu árum. Nöfnum verkfræðiskoranna var breytt til að leggja áherzlu á ný svið og kennslugreinar svo sem umhverfismál, tölvu- og hugbúnaðarverkfræði, rekstrar- og fjármálaverkfræði. Einnig var ákveðið að taka efnaverkfræðina fastari tökum. Mesta breytingin var þó sú að innleiða 3+2 kerfið í samræmi við Bologna ályktunina. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir, að allt háskólanám skiptist í 180 eininga (ECTS) grunnnám og 120 eininga framhaldsnám. Nemendur myndu eftirleiðis ljúka formlegu BS prófi í verlcfræði eftir þrjú ár og ákveða síðan hvort og hvar þeir stunduðu framhaldsnám til meistarprófs. Jafnframt var gamla fjögurra ára námið lagt niður, þ.e.a.s. prófgráðan CS („candidatus scientiae“) sem hafði verið innleidd til að verkfræðingar fengju fínt latneskt prófheiti eins og læknar og lögfræðingar. Verkfræðingafélag Islands breytti reglum sínum um veitingu leyfls til að nota starfsheitið verkfræðingur (iðnaðarráðuneytið veitir leyfið, en VFl er umsagnaraðili), og þurfti nú meistarapróf í verkfræði til að öðlast þennan rétt. Það tók nokkur ár að koma þessu nýja fyrirkomulagi á. Á tímabili virtist sem einungis yrði boðið upp á grunnnám í deildinni og fjórða árs námskeiðin legðust niður. Kennurum leizt ekld á blikuna, því að erfiðlega gekk að manna meistaraprófsnámskeiðin. Góðæri ríkti í þjóðfélaginu, og nemendur áttu auðvelt með að fá vinnu að loknu BS prófinu. Margir kusu að fara í meistaranám við erlenda verkfræðiskóla og sáust elcki meira. Á þessum árum varð sú mikla breyting á starfsemi deildarinnar, að tölvunarfræðin fluttist frá raunvísindadeild yfir í verkfræðideild og varð fjórða skorin. Þetta hleypti nýju blóði í deildina og jók fjölbreytileika námsins. Smám saman styrktist meistaranámið. Þar áttu erlendir stúdentar sem hingað voru komnir á Erasmus styrkjum, töluverðan þátt. Til að námskeið væri haldið með eðlilegum hætti, þurfti lágmarksfjöldi skráðra nemenda að vera fimm. Kom oft fyrir, að erlendir nemendur „björguðu“ námskeiðinu. Einn og 24 ...upp í vindinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.