Upp í vindinn - 01.05.2011, Side 73
Mynd 9. Scærscur hluci afsvæðinu sem séscá myndinni vinscra megin varsandur. Hægri myndin að ofan sýnirþegar aldan brocnar á garðinum.
tveggja metra ölduhæð, en það er nauðsynlegt
sérstaklega yfir vetrartímann. Nú er það svo að
það eru fá dýpkunarskip sem henta til dýpkunar
í Landeyjahöfn. Þar sem höfnin setur skorður
á djúpristu og lengd skips. Akveðið var að fá
Skandia hingað til lands til dýpkunar eftir að lagt
hafði verið mat á tilboðsupphæð og tæknikröfur.
Að lokum
Erfiðleika með dýpi við Landeyjahöfn má rekja
til þess að saman fór eldgos í Eyjafjallajöldi, með
hiaupi í Markarfljóti sem skilaði 15 földum
ársframburði, og þrálátum suðaustan ölduáttum
sem fluttu efnið vestur fyrir Landeyjahöfn.
Við það breyttist dýpi við Baldtafjöru sem jók
sandburðinn inn í höfnina. Efnisflutningar til
vesturs með ströndinni voru um 12 sinnum
meiri frá ágúst til október 2010 heldur en þeir
hafa verið á sama tíma á árunum 1958-2009.
Þessar aðstæður hafa minnkað dýpi við
Landeyjahöfn og haft þar með áhrif á rekstur
hennar.
I vor og sumar barst mikið efni inn í höfnina
en frá því í haust hefur lítið af efni borist inn í
Landeyjahöfn þrátt fyrir að mikið magn gosefna
hafi verið á ferð með ströndinni. Það bendir til
að hönnun hafnargarða og hafnarmynnis hafi
tekist vel.
Dýptarmælingar frá því í haust sýna að
stöðugt hefur dregið úr efnisburði og miðað við
flutningsgetu öldunnar þá er efnisburðurinn
aðeins brot af því sem hann var í haust.
Það er mat höfunda að þegar tekst að
dýpka Landeyjahöfn á næstu vikum mun
dýpi í höfninni haldast nægjanlegt nema í
undanteleningartilfellum.
Ströndin er að mestu búin að jafna sig eftir
gosið og líldegt er að niðurstöður rannsókna á
sandburði fyrir framkvæmdir muni ganga eftir
eða a.m.k. vera innan eðlilegra skekkjumarka.
I þeirri neikvæðu umræðu sem spunnist
hefur um höfnina hefur oft gleymst að tíma- og
kostnaðaráætlanir stóðust.
Þrátt fyrir erfiðleika þá er Landeyjahöfn mikil
samgöngubót fyrir Eyjamenn og hefur þegar
Hlutfall magn sandburðar/orku veðurs eftir tíma
"♦ Hlutfall magn sandburðar/orku veðurs eftir tíma
30.8.2010 29.9.2010 29.10.2010 28.11.2010 28.12.2010 27.1.2011 26.2.2011
Mynd 8. Sýnir þróun sandburður sem hlucfall afþeirri orku sem flycur hann frá þvísl. hausc.
skapað þeim aukin tækifæri og mun gera það
framvegis en fjölgun farþega á síðasta hálfa ári
er um 100%.
Með því að reyna að takast á við þá erfiðleika
sem staðið hafa Landeyjahöfn fyrir þrifum í vetur
hefur þekking og reynsla á hegðun sandburðar
við Bakkafjöru aukist.
Hönnun Landeyjahafnar miðaðist við
grunnskreiðara skip en Herjólf, en hann ristir um
4,2 m. Ein af grunnforsendum Landeyjahafnar
var að fá ferju sem ristir 3,3 m. Þegar hætt var
við smíði ferju í október 2008 þá lá fyrir að það
myndi hafa slæmar afleiðingar, sbr. fréttablað
Siglingastofnunar „Til sjávar“ 3. tbl. 2008 en þar
stendur: „ Til að minnka frdtafir verðurferðadœtlun
mögulega breytt pannig að skipið sigli um
sumartimann í Landeyjahöfii, en að vetrarlagi
íÞorlákshöfnþegar tíðafar er rysjóttara".
Það skiptir rnáli að hafin verði smíði nýrrar
ferju ef full not eiga að fást úr Landeyjahöfn til
framtíðar.
Það er trú okkar að við munum yfirstíga
þá byrjunarerfiðleika sem hafa verið á nýtingu
Landeyjahafnar. Framtíð hafnarinnar er björt.
Á vefsvæði
Siglingastofnunar,
www.sigHng. is/pages/1258
er upplýsingasafn um Bakkafjöru-
Gísli Viggósson, 2007. Bakkafjöruhöfn rannsóknir á aðstæðum, í ársriti VFI/TFI 2007.
Gísli Viggósson, 2010. Greinagerð um efnisburð í Landeyjahöfn tímabilið ágúst til nóvember 2010, á vef Siglingastofnunnar Islands.
Berry Elfrink, Ida Broker, Gísli Viggósson. Bakkafjara. Sediment Transport and Morphology, Phase 1. Siglingastofnun and Danish Hydraulic Institute, January 2006.
Jacob Hjelmager Jenssen, Gísli Viggósson, Berry Elfrink, Ida Broker, Nicholas Grunnet.
Bakkafjara. Sediment Transport and Morphology, Pnase 2. Siglingastofnun and Danish Hydraulic Institute, August 2007.
73