Upp í vindinn - 01.05.2011, Page 81
eytt þar, og var það ekki að ástæðulausu. Þar
er að finna himinháa skýjakljúfa, sem mætti
vel flokka sem verkfræðiundur, og ber þar helst
að nefna hæstu byggingu heims, Burj Khalifa.
Hver kannast ekki við setninguna „á sandi
byggði heimskur maður hús?“ I henni býr mikill
sannleikur, því það er vandasamt að byggja hús
á sandi. En verkfræðingum hefur þó tekist að
gera það sem margir myndu telja ómögulegt, og
fundu lausn á þessu vandamáli og byggðu heila
borg í eyðimörkinni sem samanstendur að mestu
leiti af skýjaldjúfum. Ekki nóg með það, heldur
hafa þeir lcomið þar fyrir, eins og áður segir,
hæstu byggingu heims. Einnig hafa þeir komið
þar fýrir neðanjarðarlestarkerfi ásamt nolekrum
manngerðum eyjum. Það máþví með sanni segja
að fýrir umhverfis- og byggingarverkfræðinemana
hafi Dubai verið virkilega spennandi kostur fýrir
námshluta ferðarinnar.
Lítill tími gafst til hvíldar þegar komið var
til Dubai því fýrsta heimsókn ferðarinnar beið
hópsins. Afangastaðurinn var höfuðstöðvar
Emaar, sem er þróunar- og fasteignafélag sem
hefur verið að byggja upp svæði sem nefnist
liinn afinngöngum lestarscöðvar mecró-kerfisins í Dubai
Downtown Burj Dubai og er Burj Khalifa,
hæsta bygging heims, staðsett í hjarta þess
svæðis. Fengu nemendur góða kynningu á þeirri
uppbyggingu sem hafði átt sér stað og þeim
framkvæmdum sem eftir voru. Að heimsókninni
lokinni var ekið um borgina og virtust einu
athyglisverðu hlutirnir vera manngerðir, hvort
sem það voru himinháir skýjakljúfar eða
stærðarinnar umferðarmannvirki. Upprennandi
verkfræðingum þótti þetta síður en svo
leiðinleg sjón og störðu flestir dolfallnir á þessi
meistaraverk. Einnig var elúð um Pálmaeyjurnar,
sem eru manngerðar eyjur í laginu eins og
pálmatré, og er fýrirhugað að byggja þar fjölmörg
hótel og íbúðablokkir. Loks var haldið upp á
hótel þar sem dauðþreyttir ferðalangar gátu hvílt
lúin bein.
Fyrri partur laugardagsins var frjáls og
nýttu ferðalangar sér hann til að skoða eina
af helstu gersemum borgarinnar, þ.e.a.s.
stærstu verslunarmiðstöð heims, Dubai Mall.
Verslunarmiðstöðin er yfir ein milljón m2 að
stærð og stendur við rætur Burj Khalifa. Hún
inniheldur m.a. heimsins stærsta fiskabúr með
um 33.000 lífverur, þar af400 hákarla, og eru þar
nokkrir kafarar í fullri vinnu við að þrífa búrið.
Hægt er að ganga í gegnum rör sem liggja í gegnum
fiskabúrið á þremur mismunandi hæðum, auk
þess sem hægt er að sigla ofan á vatninu. Auk
fiskabúrsins má þar finna sædýrasafn, skautasvell
og kvikmyndahús ásamt fjölda veitingastaða og
að sjálfsögðu verslana sem selja öll dýrustu og
flottustu vörumerki heims. Dubai Mall var þó
ekki eina áhugaverða verslunarmiðstöðin, því
Hópurinn staddur íjeppasafari í eyðimörkinni
Mall of the Emirates hefur að geyma innanhúss
skíðabrekku sem vakti mikinn áhuga ferðalanga
þarna í miðri eyðimörkinni.
Seinni partinn var svo haldið í jeppasafari og
var hópnum skutlað út í eyðimörkina og beið
hann þar eftir forláta Land Cruiser bifreiðum sem
sóttu ferðalanga og áttu eftir að þjóna hlutverki
rússíbana síðar meir. Flestir þökkuðu guði fýrir
veltigrindurnar í bílunum og svo var bara að vona
það besta og búa sig undir það versta. Vélarnar
voru þandar, beltin spennt og þá var ekkert
annað eftir en að þeysast um sandöldurnar og
öskra af gleði eða hræðslu. Að bílferðinni lokinni
var stoppað um stund í eyðimörkinni þar sem
ferðalangar gátu farið á bak kameldýri, horft á
föngulegar magadansmeyjar sýna listir sínar,
mi
ALMENNI
LlFEYRISSJÓÐURINN
Enginn milliliður
Verið velkomin í Borgartún 25
sími 510 2500 - www.almenni.is
m
ALMENNI
LfFEYRISSJÓÐURINN
Fjölbreyttar
ávöxtunarleiðir
Verið velkomin í Borgartún 25
sími 510 2500 - www.almenni.is
81