Upp í vindinn - 01.05.2016, Qupperneq 7
umhverfisverkfræði
eða byggingarverkfræði.
BS nemendur standa að öflugu
nemendafélagi sem heitir Naglarnir.
Skólaárið 2015-2016 er Olgeir
Guðbergur Valdimarsson formaður
félagsins. Deildin hefur ávallt átt gott
samstarf við Naglana en fræðast má
um starfsemi félagsins á heimasíðu
þess, www.naglar.hi.is.
Meistaranám
Á árinu vörðu 17 MS nemendur
ritgerðir sínar við deildina og
útskrifuðust með MS próf.
Meistaranám við Umhverfis- og
byggingarverkfræðideild er öflugt,
alþjóðlegt nám og fjöldi nemenda í
MS námi er um 60. Samstarf er við
fjölmörg fyrirtæki og stofnanir um
verkefni og koma margir starfsmenn
þaðan að meistaraverkefnum sem
leiðbeinendur eða prófdómarar.
Þannig viðheldur deildin meðal
annars nánum tengslum sínum
við atvinnulífið og útskrifaðir
verkfræðingar frá deildinni hafa verið
eftirsóttir í störf að nárni loknu.
Meistaranemendurnir eru: Ágúst
Elí Ágústsson, Græn þök á Islandi:
Greining á vatnsheldni grænna þaka
miðað við íslenska veðráttu, unnið
í samstarfi við Eflu verkfræðistofu;
Ásbjörn Egilsson, Frumathugun á
virkjun Múlaár í Gilsfirði, unnið í
samstarfi við Landsvirkjun; Ástgeir
Rúnar Sigmarsson, Skúfstyrkur
sendinna jarðefna - samanburður CPT
mælinga og tilraunastofuprófanna;
Bjarki Omarsson, Dýpi og
sandburður á Grynnslunum við
Hornafjarðarós, unnið í samstarfi
við Vegagerðina; Darri Eyþórsson,
Þróun margvíðs afkomuspálíkans
fyrir Brúarjökul, unnið í samstarfi við
Landsvirkjun; Grétar Már Pálsson,
Áhrif á heimili og mikilvæga
innviði vegna rafmagnsleysis -
Tvær tilviksrannsóknir og könnun
á undirbúningi almennings, unnið
í samstarfi við Eflu verkfræðistofu;
Guðbjörg Brá Gísladóttir,
Léttlestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu
Forhönnun lestarleiðar; Guðrún Edda
Sveinbjörnsdóttir, Umferðarslysasaga
ökumanna með heilabilun, unnið í
samstarfi við University of Missouri
- St. Louis og Washington University
in St. Louis, Medical School; Hildur
Sigurðardóttir, Hagkvæmnisathugun
sporbundinna samgangna á
höfuðborgarsvæðinu; Jose Wilon
Anover, Vistferilskostnaður, orkuþörf
byggingar og innivist: Vættaskóli-
Engi, tilvikarannsókn á mismunandi
lausnum hjúpflata, unnið í samstarfi
við Reykjavíkurborg; Jónas Páll
Viðarsson, Straumlínustjórnun í
byggingariðnaði - Innleiðing á The
Last Planner System við byggingu
Hverahlíðarlagnar, unnið í samstarfi
við LNS Saga; Kristján Andrésson,
Frostþol ferskrar steypu; Reynir
Oli Þorsteinsson, Utreikningar
vorbráðnunar á yfirborðsrennsli í
Efri Þjórsá endurbættir með hjálp
snjómælinga, unnið í samstarfi
við Landsvirkjun; Robert Pajdak,
Orkugeymsla milli árstíða;
Varmageymsla á ísafirði, unnið
í samstarli við Raunvísindadeild
Háskóla Islands; Seyedeh
Masoumeh Safavi, Könnun á
áhrifum formeðhöndlunar með
rafsegulpúlsum á metanmyndun
lífrænna efna, unnið í samstarfi við
Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði
og tölvunarfræðideild Háskóla
Islands og ReSource International;
Sigurbjörn Bárðarson,
Kerfisauðkenning á burðarvirkjum
með óhefðbundna dempun, unnið
í samstarfi við NTNU, Noregi;
Steinar Berg Bjarnason, Hagnýting
upplýsingalíkana mannvirkja við
áætlanagerð og verkefnastýringu
mannvirkjaverkefna, unnið í
samstarfi við VSO Ráðgjöf.
Nánari upplýsingar um verkefnin,
leiðbeinendur og samstarfsaðila er að
finna á vefsíðu deildarinnar og þar
má einnig finna tengil á ritgerðirnar
(http://www.hi .is/umhverfis_
og_byggi ngarverkfraed idci Id/
meistaranemar).
Verkleg kennsla
Verkleg kennsla er hluli margra
námskeiða deildarinnar. Verkleg
kennsla er allt frá tilraunum
gerðum í tilraunastofum, keppni
nemanda í smíði brúa sem geta
Mynd 1. Frá vinstri, Sigurður Magnús Garðarsson, varadeildarforseti; Eeva-Sofia Sáynajoki,
Jukka Heinonen, leiðbeinandi.