Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 8
tekið upp mikið álag miðað við
þyngd, mælingar í mörkinni á
t.d. rennsli og vatnsgæðum og
kennslu á umfangsmikil forrit eins
AutoCAD, Revit, og landfræðilega
upplýsingakerfið ArcGIS.
Deildin rekur tilraunastofur í VR-
III, tilraunahúsi verkfræðinnar.
Gera nemendur þar tilraunir m.a.
í straumfræði, burðarþolsfræði,
jarðtækni og umhverfisverkfræði.
Síðustu ár hafa tæki verið endurnýjuð
og ný keypt til að efla enn frekar
kennslu í verklegu námi deildarinnar.
Fyrir tilraunir í straumfræði hafa
m.a. vindgöng (þar sem mæla má
vindmótstöðu hluta), pípubekkur (þar
sem mæla má viðnám pípuvcggja
við rennsli) og Reynoldstæki (þar
sem lagstreymi og iðustreymi
verða sýnileg) frá Armfield verið
endurnýjuð í samstarfi við námsbraut
í vélaverkfræði í Iðnaðarverkfræði-,
vélaverkfræði og tölvunarfræðideild.
Mynd 2. Frá keppni BS nemenda í umhverfis- og byggingarverkfræði í brúarsmíði.
Mynd 3. Vindgöng til að mæla vindmótstöðu hluta í tilraunaaðstöðu Umhverfis- og
byggingarverkfræðideildar.
I jarðtækni hefur nýlega verið keyptur
sjálfvirkur sigprófsmælir (ödometer),
sem notaður er til að kanna
sigeiginleika jarðvegs, og er hann sá
fullkomnasti á landinu. A næsta ári
verður keypt skúfbox sem notað er til
að kanna broteiginleika jarðvegs.
í VR-III er viðamikil aðstaða til
burðarþolsrannsókna og kennslu.
A árinu var þessi búnaður uppfærður
og endurnýjaður. Búnaðurinn er
frá breska fyrirtækinu Instron og
samanstendur af færanlegum 100
kN tjakki og stóru brotþolstæki
sem er 500 kN tjakkur í sérstökum
ramma. Báðir tjakkarnir eru
samtengdir við öfluga vökvadælu
sem staðsett er í útihúsi við VR-III
til að einangra hávaða og titring
frá dælunni. Báðum tjökkum er
stýrt af sömu stýrieiningunni sem
er tengd við tölvu með sérhæfðum
hugbúnaði sem heldur utan um
gagnaskráningu. Einnig á deildin
hristiborð þar sem hægt er að herma
jarðskjálftahreyfingar og kanna
þannig áhrif á mannvirki.
Deildin er einnig að nýta mælitæki
og búnað sem deildin fékk að gjöf frá
Hveragerðisbæ. Búnaðurinn ákvarðar
líffræðilega súrefnisþörf. BOD
mælingar og svifagnatilraunir gefa til
kynna mengun í skólpi og möguleg
neikvæð áhrif þess á vatnavistkerfi.
Með þessari gjöf hefur deildin getað
styrkt aðstöðu til að þjálfa nemendur
í mælitækni á sviði skólphreinsunar,
sem er eitt af undirstöðufagsviðum
umhverfisverkfræði. Háskóli Islands
þakkar Hveragerðisbæ kærlega
fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem
er að efla nám í umhverfis- og
byggingarverkfræði. Deildin hefur
einnig fest kaup á tæki til að meta
vatnsgæði í mörkinni sem notað
verður í verkefnavinnu nemanda.
Rannsóknir
Rannsóknir deildarfólks snerta
fjölmörg svið innan greinarinnar og
eru unnar í samstarfi við innlenda
og erlenda fræðimenn, fyrirtæki og
stofnanir. Rannsóknirnar eru styrktar
af samkeppnissjóðum og tekur
deildarfólk þátt í fjölda alþjóðlegra
rannsóknarverkefna og leggja
doktorsnemar fram drjúgan skerf
af rannsóknarvinnunni. Sem dæmi
um alþjóðleg rannsóknarverkefni
má nefna að deildin tekur þátt
í Norræna öndvegissetrinu
NORDRESS (nordress.hi.is, Nordic
Centre of Excellence on Resilience
and Societal Security) styrkt af
NordForsk; Evrópuverkefnunum
ENHANCE (Enhancing risk
management partnerships for
catastrophic natural disasters
in Europe, enhanceproject.eu);
AQUAVALENS (Protecting the
8