Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 18

Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 18
Kísilverksmiðja í Helguvík Kristján Arinbjarnar Framkvæmdastjóri Tækni- og þróunarsviðs hjá IAV IAV annast verkefnastjórnun, hönnunarstjórnun, byggingarstjórn og framkvæmdir við byggingar 1. áfanga Kísilverksmiðju Sameinaðs Sílikon í Helguvík. í fyrsta áfanga verður einn 35 MW ofn keyrður. Fyrirhugað er að hönnun og bygging fjögurra ofna verður lokið innan 10 ára og samtals muni verksmiðjan þá nota 140 MW af rafmagni. Framkvæmdir við verkið eru nú að nálgast hámark. Nú um miðjan febrúar 2016 eru 170 starfsmenn við störf á verkstað. Framleiðsla og notkun á kísilmálmi Kísill finnst finnst víða í formi kvarts (SiOJ. Framleiðsla kísilsins fer fram í ljósbogaofnum sem hitar hráefnin upp í um 1900°C. Ofnarnir eru stórir lokaðir tankar með vatnskældri múrsteinsfóðringu. Gegnum þak ofnana ganga þrjú grafit rafskaut og er hráefnið þannig rafgreint. Rafskautunum eru lyft upp eða þau látin síga með tölvustýrðu vökvakerfi til að stýra rafgreiningunni. Ofninn stendur á hjólum svo hægt er að snúa ofninum í hringi. Fljótandi kísill (Si) er tekinn úr botni ofnsins og settur í mót, til storknunar og kallast þá grófur kísill SiO, + 2C + O, -> Si + 2C02 Til að framleiða eitt tonn af kísli í ljósbogaofni þarf um 12 MWh raforku. Hráefni sem þarf til að framleiða tonn af kísli eru um 2,6 tonn kvartsgrjót, um 1,5 tonn kol og koks og um 1,3 tonn af tréflís. Kísilmálmur er fyrst og fremst notaður til íblöndunar í stálframleiðslu og kísill til blöndunar í álframleiðslu. Þáerkísill notaður við framleiðslu á rafeindabúnaði og við framleiðslu á sflikon efnum. Dæmi um vörur sem innihalda kísil eru bflavarahlutir, skósólar, íþróttafatnaður, tölvur, símar, felgur og sólarsellur. Kísill er líka notaður í sjampó, hárnæringu, smurolíur, sleipiefni og ýmsar snyrtivörur. Verkefni íAV í Helguvík Verkkaupinn, Sameinað Sílikon, sem byggir verksmiðjuna samdi við ÍAV um að annast verklegar framkvæmdir. Hönnuðir búnaðar eru Tenova Pyromet, höfuðstöðvar þeirra eru í Mílanó, Ítalíu, en starfsemi og framleiðsla búnaðar fer einnig fram í Suður Afríku og á Indlandi. Tenova Pyromet eru leiðandi á heimsvísu í hönnun á háþróaðri tækni, vörum og þjónustu fyrir málm- og námuvinnslu. Markstofa Arkitekt, Verkís og Verkfræðistofa Suðurnesja annast alla hönnun á byggingum, lóðahönnun, burðarþoli, raflögnum, lögnum, veitum, brunahönnun og allri annarri hönnun en þeirri sem snýr beint að framleiðsluferlinu sjálfu. Grunnsamningur við ÍAV er um byggingu á ofnhúsi verksmiðjunnar. Ofnhúsið er að flatarmáli 2.654 mI 2 og samanlagt 6.600 m2. Ofnhúsið er um 40 metrar á hæð. Umfang verkefnis ÍAV við byggingu verksmiðjunnar hefur vaxið jafnt og þétt eftir því sem undirbúningi miðar áfram. ÍAV annast alla þætti við byggingu verksmiðjunnar, hönnunarstýringu, verkefnastjórnun, samræmingu , öryggismál, umsjón og áætlanagerð. Verkkaupi, Sameinað Silicon (USi) annast sjálfir umsjón með hönnun og uppsetningu á vélbúnaði, raflögnum til framleiðslu og stýringum. Verksmiðjan samanstendur m.a af eftirtöldum byggingarhlutum: O Ofnhús O Hráefniskerfi (skiptist í 4 hluta) O Hreinsivirki (skiptist í 6 hluta) O Aðveitustöð rafmagns O Starfsmanna- og skrifstofuaðstaða O Dreifistöð raflagna og stýringar O Lóð, girðingar og lagnir Hönnun og hönnunarstýring Þegar IAV kom að verkefninu og framkvæmdir hófust var staðsetning verksmiðjunnar ákveðin og unnið var að nánara skipulagi verksmiðjunnar. ÍAV Mynd 3. Afstöðumynd Markstofu, Arkitekt Magnús H Ólafsson. Mynd 4. Frumhugmynd af skipulagi. Við upphaf framkvæmda voru fyrirliggjandi takmarkaðir uppdrættir til að vinna verkið eftir. Meðfylgjandi yfirlitsmynd er fumhugmyndir frá Sameinað Sílikon. Skipulagið hefur, samhliða framkvæmdum við einstaka hluta verksmiðjunnar, þroskast og þróast í samræmi við fullnaðarhönnun á búnaði og framleiðsluferlinu. Meðfylgjandi Afstöðumynd Markstofu Arkitekt Magnús H Ólafsson sýnir skipulagið eins og það er í dag. Verkefnastýring og stjórnun verkefnis I upphafi voru á vegum ÍAV þrír stjórnendur við verkefnið. IAV hefur svo eftir því sem verkinu hefur miðað aukið mannafla á verkinu og fjölgað stjórnendum verksins eftir því sem þörf hefur verið. Nú um miðja febrúar 2016 eru starfandi um 170 manns á verkstaðnum auk þess sem unnið er að framleiðslu á búnaði og efnisframleiðslu víða utan sem innan lands. Þannig eru yfir 250 manns starfandi við framkvæmdina. Stjórnunarteymi ÍAV á verkstaðnum telur nú um 14 manns, 6 verkstjórar 18 19

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.