Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 33
Skólaárið 2015-2016
Olgeir Guðbergur Valdimarsson
Formaður Naglanna, nemendafélags
umhverfis- og byggingarverkfræðinema
Umbygg
Umbygg er stytting á því
óþjála nafni: Umhverfis- og
byggingarverkfræði. A mínum fyrsta
skóladegi stóðu stjórnarmeðlimir
Naglanna með skilti fyrir framan
VR-I sem á stóð Umbygg og
smöluðu saman fyrsta árs nemum.
Þetta voru fyrstu kynni mín af vinum
sem ég mun eiga allt mitt líf. Já,
það er virkilega svona góður andi í
deildinni okkar. Mikil og góð vinna
hefur verið sett í að skapa þennan
góða anda og vil ég þakka öllum
þeim sem að því hafa komið fyrir
frábær störf. Vellíðan í vinnuumhverfi
er eitthvað sem við áttum okkur betur
á með hverjum degi hvað skiptir
miklu máli. Umbygg er kannski ekki
llottasta nafnið en það venst og nú
finnst mér alltaf jafn gaman að sjá
svipinn á fólki sem hefur aldrei heyrt
það áður.
Naglar eru montnir
Nemendafélagið okkar heitir
Naglar. Naglarnir vita það í hjarta
sínu að þeir eru meðlimir í besta
nemendafélagi háskólans. Það sýnir
sig ár eftir ár að Naglarnir halda
flesta og besta viðburði af öllum
nemendafélögum háskólans og þar
sem við erum íslendingar þá verð ég
að minnast á höfðatöluna. Við erum
nefnilega bara rúmlega 60 í félaginu
og því er þátttaka nemenda mikil
miðað við höfðatölu.
„Naglarnir halda
flesta og besta
viðburði aföllum
nemendafjöldum
háskólans og þar sem
við erum Islendingar
verð ég að minnast á
höfðatöluna.“
Að vera fámennt félag hefur marga
kosti en ég tel að það hjálpi til við
að þjappa hópnum saman. Naglar
kynnast með eindæmum vel og
eru vinabönd þeirra sterk. Auðvelt
er fyrir nemendur að nálgast þá
sem reyndari eru, bæði þá sem
eru á efri árum grunnnámsins og
meistaranemendur. Góð tenging er
við nemendafélag meistaranema á
Verkfræði- og náttúruvísindasviði
(VoN), Heron, en Naglar bjóða þeim
iðulega með sér í vísindaferðir.
Skráning nemenda í félagið er
einnig með eindæmum góð en
aðeins í undantekningartilvikum
eru nemendur ekki skráðir í félagið.
Að fara í vísindalerðir er mikið fjör
en ekki rná gleyma mikilvægasta
þættinum, það er tengingunni sem
nemendur fá beint við atvinnulífið.
Lærdómurinn sem tilvonandi
verkfræðingar fá í ferðunum verður
seint metinn til fjár en án hans væru
nemendur án efa verr upplýstir um
gang mála í atvinnugreininni sem
þeir koma til með að starfa við.