Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 45
Viðtöl við
verkfrœðinga
Hvaða grunngráðu kláraðir þú og
hvenær?
Ég tók Master of Science in
Engineering frá Johns Hopkins
University, Baltimore, USA, 1991,
í sveiflugreiningu (jarðskjálfta-
og vindverkfræði, með áherslu
á jarðskjálftaverkfræði).
Meistaraverkefnið heitir: Evaluation
of a Loss Estimation Model for
Earthquakes.
Eg er með doktorspróf frá HI
sem ég varði 26. febrúar 2016.
Doktorsverkefnið heitir: Towards a
theoretical foundation for disaster-
related management systems, a
system dynamics approach.
Við hvað starfar þú í dag?
Ég var að 1 júka doktorspróh svo að
síðustu ár hefi ég verið nemandi. En
á sama tíma hefi ég verið sjálfsstætt
starfandi ráðgjafaverkfræðingur og
rek lítið ráðgjafafyrirtæki sem heitir
Rainrace ehf., sem ég stofnaði 2003.
Rainrace sinnir alls konar ráðgjöf í
sambandi við áhrif náttúruhamfara
á byggð. Ég er einnig með
hlutastöðu á Rannsóknarmiðstöð HI
í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi þar
sem ég sinni rannsóknaverkefnum.
Auk þess starfa ég í neyðarteymum
á vegum Sameinuðu þjóðanna og
Rauða krossins. Ég fór í fá útköll
á meðan ég var í náminu en ætla
að fara að sinna þessum teymum
betur. Ég starfa einnig með íslensku
alþjóðabjörgunarsveitinni en það er
launalaust.
Er mikilfjölhreytni ístarfinu?
Mitt áhugasvið er áhrif
náttúruhamfara á byggð og hef
valið mér störf og verkefni sem
tengjast því. Það eru margs konar
verkefni sem þarf að sinna eins og
greiningar á náttúruvá og hversu
hætt mannvirki og byggðaveitur
eru gagnvart skemmdum,
forvarnaverkefnum til draga úr
líkum á skemmdum, margs konar
viðbúnaði til að vera undirbúinn
að takast á við náttúruhamfarir í
byggð og afleiðingar þeirra, og
svo kerfisbundnu lærdómsferli í
kjölfar náttúruhamfara í byggð.
Viðskiptavinir eru afar mismunandi
(t.d., ráðuneyti, ríkisstofnanir,
sveitarfélög, alþjóðastofnanir,
rannsóknarstofnanir) og því þurfa
verkefni að vera leyst með þarfir
Sólveig Þorvaldsdóttir
Jarðskjálftaverkfræðingur
hvers og eins í huga. Fjölbreytnin er
því mikil. Flest verkefni eru erlendis,
sem krefst ferðalaga, en hægt er að
vinna hluta verkefnanna heima og í
gegnum Skype sem hjálpar til við að
draga úr ferðalögum og kostnaði.
Hvert er eftirminnilegasta/
skemmtilegasta verkefni sem þú
hefur unnið að síðan þú laukst
námi?
Það eru nú bara 2 vikur síðan ég
lauk PhD svo ég er enn að njóta
þess að það sé yfirstaðið. Eftir
grunnnám vann ég hjá ÍSTAK í tvö
ár. Eftirminnilegasta verkefnið hjá
ÍSTAK var að dýpka innsiglinguna
í Sandgerði. Leigður var prammi
frá Noregi og boraðar holur með
lm millibili sem voru fylltar með
dýnamíti og sprengdar um 20 holur
í einu. Eftir meistaraverkefnið
vann ég í Kaliforniu í tvö ár. í
Kaliforníu var ég að greina mynstur
í húsaskemmdum og studdist við
gagnagrunn með upplýsingum frá
120.000 skemmdum húsurn eftir
Northridge jarðskjálftann í
Kaliforníu 1994. Á árunum
1996-2003 var ég framkvæmdarstjóri
Almannavarna ríkisins.