Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 54
Þessi sviðsmynd sýnir að askan er
mest neðarlega í lofthjúpnum og
truflar því lágar flughæðir, flugtak
og lendingu. Fulltrúi frá Rolls Royce
mat þetta svo að jafnvel með nýju
evrópsku viðbragðsreglunum yrði að
takmarka flugumferð strax á öðrum
degi og jafnvel drægi úr flugumferð
um helming á svæðinu.
Ahrifin á flugumferð yrðu
óneitanlega veruleg.5
Hin sviðsmyndin sýnir sólarhrings
gos í Öræfajökli með gríðarlega
mikilli ösku á þeim stutta tíma.
Þessi sviðsmynd er byggð á gosinu
í Öræfajökli árið 1362.6 Hér eru
könnuð viðbrögð við mjög stóru
öskugosi sem hefur í för með sér
mikla truflun á flugumferð. Mynd
2 sýnir hermun á öskudreifingu
frá Öræfajökulsgosi í fimm daga
eftir gosið. Svona gos myndi hafa
áhrif á allar flughæðir. Fulltrúi frá
EUROCONTROL sagði að jafnvel
þótt fiugsvæðum yrði ekki lokað af
flugumferðastjórnum Evrópulanda,
nryndu nær engar vélar fara á loft.
Áhrif á flugumferð yrðu
því mjög mikil ,7
Vinnustofa hagsmunaaðila
Hagsmunaðilum í fluggeiranum var
boðið að taka þátt í vinnustofu til að
kanna viðbrögð þeirra við þessum
sviðsmyndum. Vinnustofan var
skipulögð af rannskóknarhópnum
við Háskóla Islands og þátttakendur
komu frá EUROCONTROL,
IATA, Icelandair, Samgöngustofu,
ISAVIA, Veðurstofu íslands,
Innanríkisráðuneytinu og Rolls
Royce. Rætt var við fulltrúa London
Volcanic Ash Advisory Centre í
síma til að sjónarmið þeirra væru
einnig með. Vinnustofan þjónaði
einnig sem samráðsvettvangur
hagsmunaaðilanna um skipulagningu
og undirbúning fluggeirans við stóru
eða langvarandi öskugosi á Isiandi
sem truflaði flugumferð í Evrópu.
Vinnustofan stuðlaði að samskiptum
milli hagsmunaaðilanna um hindranir
í núverandi ferli og leiðir til að
bæta viðbrögð og efla viðnámsþrótt
gagnvart svona atburðum.
I vinnustofunni skiptust á stuttar
kynningar frá rannsóknarhópnum
og hagsmunaðilunum,
pallborðsumræður, og
hópavinna í stórum og litlum
hópum. Heildarferlið var rætt
í pallborðsumræðum sem allur
hópurinn tók þátt í, en minni
hópar voru notaðir til að ræða
nánar sérstök atriði og áherslur.
Sviðsmyndirnar voru kynntar sem
frásagnir ímyndaðra dagblaða til þess
að auðvelda hópnum að lifa sig inn
í aðstæðurnar og ræða raunveruleg
viðbrögð sín við þessum fréttum og
nánari upplýsingum
um sviðsmyndirnar.
I umræðunum var einnig unnið með
teikningar af ferlum og samskiptaneti
hagsmunaaðilanna. Einnig voru
lagðar fram rannsóknarspurningar
og áhersluatriði fyrir umræður og
hópastarf. Til þess að stuðla að
fjölbreyttari umræðu var nokkrum
sinnum skipt um umhverfi og
staðsetningu hópanna, til þess hjálpa
þátttakendum að sjá hlutina í öðru
ljósi, kynnast öðrum og ræða við
mismunandi fólk.
Skipulag vinnustofunnar virtist
stuðla að frjóum samræðum og
miðlun upplýsinga. Þátttakendur
voru mjög jákvæðir og sýndu
verkefninu mikinn áhuga.
Viðhorfskönnun eftir vinnustofuna
sýndi einnig mjög jákvæð viðbrögð.
Meðan á undirbúningi stóð, fréttu
hagsmunaaðilar af henni og báðu
sumir af fyrra bragði um að
fá að vera með.
Könnun á árangri vinnustofunnar
sýndi að hún er jákvæð og vel metin
viðbót en þar sagði meðal annars:
„Vinnustofan var frábært tækifæri
því þetta var í fyrsta sinn sem
sérfræðingar sem vinna að öllum
þáttum þessa ferlis hittust við eitt
borð, hlýddu hver á annan
og ræddust við.“
Arangur og niðurstöður
I vinnustofunni kom glöggt fram
að nýlegar breytingar á reglum og
breytt viðbrögð fluggeirans við
öskugosi gera honum kleift að
ráða við stærri viðburði en gosið í
Eyjafjallajökli árið 2010. Enn má
bæta, og meðal annars var farið yfir
hindranir í núverandi ferlum sem
nauðsynlegt er að taka á til að bæta
ferlin enn frekar. Þátttakendur lögðu
til dæmis áherslu á að enn skortir
þekkingu á þeim skaða sem aska
getur valdið á þotuhreyflum og þar
er mikið starf óunnið. Einnig þarf
að bæta mat á óvissuþáttum, fara
yfir ýmsar starfsreglur og mat á
starfsgetu. Þannig leiddi rannsóknin
í Ijós tækifæri til að bæta ferli á
sviðum samskipta, rannsókna og
þróunar, undirbúnings starfsfólks og
viðbragðsáætlana.
Rannsóknin staðfestir að formlega
eru innviðir og ferli vel til reiðu.
Það eru vel skilgreindar einingar
hjá öllum hagsmunaaðilunum sem
eru virkjaðar þegar þörf krefur,
eins og Crisis Management Unit
hjá EUROCONTROL.8 Einnig eru
haldnar alþjóðlegar æfingar, eins og
VOLCEX, þar sem viðbrögð
eru æfð árlega.9
Hins vegar þá sýndi rannsóknin að
aðgerðaáætlanir byggja að mestu
á undirbúningi undir „síðasta
atburð“ en ekki nægilega mikið
á þeim atburði sem kann að vera
í vændum. Aðgerðaráætlanirnar
mega sem sagt vera framskyggnari.
Áhættustjórnun sem byggir of náið
á Eyjafjallajökulsgosinu 2010 getur
gefið falska öryggistilfinningu, því