Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 55
ekki er víst að hún dugi í stærra eða
langvinnara gosi.
í hermunum sem sýndar eru þá er miðað við ösku sem kemur upp í 24 stunda
gosi. Askan er sýnd sem skýrt afmarkað svæði þar sem þéttleiki ösku er nægur til
að hamla flugumferð.
Almennt vinnuálag í stofnunum og
fyrirtækjum getur orðið til þess að
starfsfólki vinnist ekki tími til að líta
til framtíðar og gera ráð fyrir mun
alvarlegri atburðum en síðasta gosi.
Þrátt fyrir gosið 2010 fer því fjarri
að áhætta tengd öskugosum á Islandi
sé að fullu metin og viðurkennd í
Evrópu. Það má að hluta rekja til þess
að samskipti milli fræða- og fagsviða
eru takmörkuð. Þótt þekkingu hafi
fleygt fram á vissum sviðum, s.s. á
eðli öskugosa og líkum á þeim, og þó
líkön um öskudreifingu séu í sífelldri
framþróun, þá skortir enn rannsóknir
á mikilvægum sviðum, t.d. á áhrifum
ösku á þotuhreyfla. Sú staðreynd að
enn ríkir mikil óvissa um áhrif ösku á
hreylla virðist ekki öllurn ljós. Svör
þátttakenda í vinnustofunni bentu til
þess að þeir hefðu lært ýmislegt nýtt
um þá óvissu.
Enn þarf að bæta samskiptaferli
og samstarf milli hagsmunaaðila
til að draga úr fjárhagslegum og
samfélagslegum skaða af miklu
eða langvarandi öskugosi. Einnig
þarf að taka með fleiri geira sem
tengjast fíugi eða verða fyrir
áhrifum af öskugosi, t.d. þá sem
annast land- og sjávarflutninga, en
þeir þurfa að vera með í að þróa
víðtækar viðbragðsáætlanir til að
geta tryggt nauðsynlega flutninga
á vörum og fólki ef fiug stöðvast
um langan tíma. Flutningageirinn
almennt þarf að vera með í gerð nýrra
viðbragðsáætlana svo flutningar með
bifreiðum, járnbrautum, prömmum
og skipum séu með í ráðum við að
draga úr þeim skaða sem stöðvun
flugumferðar getur valdið. Því er
nauðsynlegt að kalla eftir víðtæku
samráði margra geira þjóðlífsins við
þróun aðgerðaráætlana fyrir mikil eða
langvarandi öskugos sem geta haft
alvarleg áhrif á flugumferð.
Notast er við gos sem stendur í 24 klst til að skoða hvað gerist í upphafi öskugoss,
en endurtekin gos eru möguleg svo vikum skiptir. Þegar þrýstingur gossins
minnkar þá lækkar öskustrókurinn og líkanið þarf að taka það með í reikninginn
(viðtal við fulltrúa Veðurstofu íslands, 2015). Kortin sýna mismunandi þéttleika
ösku þar sem lítill þéttleiki er blár (200 - 2000 /<g/m3), miðgildi eru grá
(2000 - 4000 //g/m3), há gildi eru rauð (4000+ //g/m3).
Eyjafiallaiökull scenario plots (FL000 - FL200)
u Mr ConftntriOwi rl
•k M Conctwmlon ">
Mynd 1. Sviðsmynd fyrir gos í Eyjafjallajökli. Eftir 24 klst er spáð miklum öskuþéttleika yfir
Stóra Bretland þ.m.t. London, en einnig í hlutum Noregs, Svfþjóðar og Danmerkur. A næstu
dögum fer öskumassinn lengra í suður og spannar Evrópu frá vestri til austurs. Það dregur úr
þéttleika öskunnar en enn er nokkuð breitt svæði þar sem spáð er þéttleika á bilinu
200 - 2000//g/m3 upp að flughæð 200 fimm dögum eftir gosið.