Upp í vindinn - 01.05.2016, Blaðsíða 63
Nú þegar fjármagnar
Norska vegagerðin fjölmörg
rannsóknarverkefni í tengslum
við undirbúning þessara
stórframkvæmda, auk þess sem
fleiri verkefni eru í undirbúningi.
Þeir háskólar sem hafa aðallega
komið að verkefnum á sviði
verkfræði eru NTNU í Þrándheimi,
Chalmers í Gautaborg og Háskólinn
í Stavanger. En einnig er Háskólinn
í Bergen að vinna að verkefnum sem
tengjast samfélagslegum áhrifum
verkefnisins.
Þverun fjarða
Stærsta viðfangsefnið og forsenda
annarra undirverkefna er augljóslega
að það þarf að brúa með einum eða
öðrum hætti átta breiða og djúpa
firði. Eins og tafla 1 sýnir, þá er
verkefnið á mörkum hins mögulega,
þar sem umræddir firðir eru ekki bara
breiðir heldur einnig mjög djúpir.
Lengsta hengibrú sem byggð hefur
verið er Akashi-Kaikyo brúin í
Japan (opnuð 1998). Hún er með
1991 m langt haf á milli 297 m
hárra turna, sem standa á 60 m dýpi.
Upphaflega átti haflengdin að vera
1990 m en í Kobe jarðskjálftanum
1995 þá færðust undirstöður
turnanna til, en þeir voru þá í
byggingu, þannig að haflengdin
jókst um 1 m. Lengsta hengibrú
sem byggð hefur verið í Noregi er
brúin yfir Harðangursfjörðinn, þ.e.
Hardangerbrua, sem tekin var í
notkun sumarið 2013. Hún er áttunda
lengsta hengibrú í heiminum í dag,
með 1310 m langt haf á milli turna.
Skástagsbrýr (cable-stayed bridges)
hafa mestu haflengd í kringum
1000 m. Af þeim er Russky brúin
í Vladivostok í Rússlandi (opnuð
2012) með lengsta haf milli turna,
eða 1104 m.
Tafla 1. Lykiltölur fyrir helstu þverunarstaði [1,2]
Staðarheitir Breidd (km) Dýpi (m) Hugmyndir að þverun
Halsafjorden 2 5-60 0 Hengibrú með einu hafi
Moldefjorden, lengri leið 13 330 Göng undir sjó
Moldefjorden, styttri leið 1,6 5-60 0 Hengibrú með einu hafi
Storfjorden / Sulafjorden 3-5 450 Fljótandi hengibrú með þremur höfum
Voldafjorden 2,5 600
Nordfjorden 1,7 3-50 0
Sognefjorden 3,7 1250 Rörabrú, flotbrú, fljótandi hengibrú
Bjömafjorden 4-5 5-60 0 Rörabrú, flotbrú, fljótandi hengibrú
Boknafjorden, lengri leið 26,7 390 Göng undir sjó
Boknafjorden, styttri leið 7,5 350 Flotbrú
Mynd 2. Dærai um nokkrar lausnir sem sem notaðar eru fyrir olíuborpalla í dag (Statens vegvesen).
Lengsta flotbrú sem byggð hefur
verið er Evergreen brúin (opnuð
1963) yfir Lake Washington í
Washington fylki í Bandaríkjunum,
sem tengir saman Seattle og
Medina. Sjálf flotbrúin er 2310
m, en brúin í heild er 4750 m. I
Washington fylki eru nokkrar aðrar
langar flotbrýr (1500-2000 m),
þar af tvær í Washington vatni. en
þar er um að ræða innsjó þar sem
ölduhæð eru allajafna óveruleg. I
norska skerjagarðinum er hins vegar
víðast hvar umtalsverð ölduhæð
og oft einnig verulegir straumar
sem tengjast áhrifum flóðs og
fjöru. Lengsta flotbrú í Noregi er
Nordhordland brúin (1245 m löng,
opnuð 1994) nálægt Bergen.
Þegar lengstu brýr heimsins eru
bornar eru saman við upplýsingar
um breidd og dýpt á þeim fjörðum
sem þvera þarf á E39, sbr. töflu I, þá
er ljóst að ekki verður hægt að leysa
þær þveranir með hefðbundnum
lausnum, heldur þarf til nýjar
hugmyndir og útfærslur.
63