Upp í vindinn - 01.05.2016, Side 64
Stóra hugmyndin er að blanda saman
þekktum lausnum sem notaðar
hafa verið við hönnun og frágang á
olíuborpöllum í Norðursjónum og
hefðbundnum lausnum við brúargerð.
Þar er til dæmis horft til þess
möguleika að byggja hengibrýr eða
skástagsbrýr á fljótandi undirstöðum,
sem taka mið af þeim lausnum sem
notaðar hafa verið fyrir olíuborpalla
síðustu áratugi (sjá mynd 2).
Mynd 3. Hengibrú með þremur höfum þar sem tveir af fjórum turnum standa á fljótandi undirstöðum.
Ýmsir möguleikar eru varðandi útfærslu á hinum fljótandi undirstöðum (Statens vegvesen).
Hugmyndavinnan er hafin og eru
ráðgjafar og rannsakendur að skoða
ýmsar nýstárlegar lausnir, svo sem:
O Hengibrýr með eitt ofurlangt haf.
O Hengibrýr með tveimur til þremur
höfum á fljótandi undirstöðum.
Q Skástagsbrýr með tveimur til þremur
höfum á fljótandi undirstöðum.
q Flotbrýr með mismunandi útfærslum
varðandi flotholt, stögun og form.
q Rörbrýr sem marra í hálfu kafi, með
mismunandi útfærslum varðandi
flotholt, stögun og form.
O Sambland af ofangreindum lausnum.
Meðfylgjandi myndir 3,4, og 5 sýna
nokkrar hugmyndir sem verið hafa til
skoðunar. Þessar lausnir eru metnar
sem tæknilega mögulegar en frekari
vinna við útfærslu þeirra miðast að
því að auka þekkingu á styrkleikum
og veikleikum viðkomandi
lausna, þar með talið kostnað og
áreiðanleika. Ahugasamir geta kynnt
sér þær tillögur sem fram hafa komið
á vef Norsku vegagerðarinnar (http://
www.vegvesen.no/fag/Teknologi/
B ru er/B rukonferan ser).
Meðal þess sem þarf að rannsaka
sérstaklega fyrir hvern stað er:
q Náttúruáraun: Mælingar á vindi,
straumum og öldum. Æskilegt er
að slfkar mælingar fari fram yfir
a.m.k. fimm ára tímabil þannig að
hægt sé að gera sér grein fyrir helstu
hönnunarforsendum vegna vind- og
ölduálags.
64
Mynd 4.Rörabrú, annars vegar má staga rörin við botninn eða festa þau við flotholt á yfirborðinu
(Statens vegvesen).
Mynd 5. Flotbrú tengd fljótandi skástagsbrú í miðjunni til að tryggja siglingaleið (Statens vegvesen).
q Grundunaraðstæður: Það þurfa að
fara fram rannsóknir á eiginleikum
jarðlaga, bæði lausra og fastra, þar
sem staðsetja á undirstöður eða festur
fyrir mannvirki.
q Skipaumferð: Það þarf að safna
gögnum um umferð skipa á
svæðunum sem á að brúa.
Meðal annars vegna þess að
óhappaáraun vegna ákeyrslu skipa á
brúarmannvirki getur verið ráðandi
fyrir hönnun mannvirkisins og/eða
haft áhrif á útfærslu og val lausna.
I tengslum við mælingar á vindi,
straumum og öldu er einnig þörf á
að þróa frekar aðferðir til að herma
vind, öldur og strauma á viðkomandi
þverunarstöðum. Vinna við mælingar
á vind- og ölduaðstæðum er nú þegar
hafin á nokkrum stöðum og verið
er að bjóða út frekari verkefni á því
sviði.