Upp í vindinn - 01.05.2016, Síða 67
vindhraða, í x-stefnu og y-stefnu.
Hægt er að mæla ýmist á láréttum
línum eða eftir lóðréttum línum utan
við brúnna í ákveðinni fjarlægð frá
dekkinu. Dæmi um slíka mælingu
má sjá á mynd 14 sem sýnir meðal
annars hæðarferil meðalvindhraða
hlémegin við brúardekkið. Eins og
myndin sýnir þá hefur brúardekkið,
sem er í 50 m hæð, talsverð áhrif á
vindhraðann. Segja má að hægt sé að
sjá vökina sem myndast
hlémegin brúardekksins.
Lokaorð
Hér hefur lausleg verið gerð grein
fyrir metnaðarfullum áformum
Norðmanna í brúargerð ásamt því að
fjalla um mælingar á áhrifum vinda á
hengibrú yíir Lysefjörðinn.
Mælingar á náttúruáraun og svörun
raunverulegra mannvirkja eru
mikilvægar í mörgu tilliti. Þær
gefa nýjar upplýsingar um eðli
og eiginleika þeirrar áraunar sem
mannvirkið verður fyrir auk þess
að gefa upplýsingar um eiginleika
mannvirkisins sjálfs. Hvort tveggja
má nýta til að staðfesta og/eða
time (s)
GNSS —Accelerometer
20 100 200 300 400 500 600
time (s)
Mynd 11. Samanburður á lóðréttri færslu (efst)
og hliðarfærslu (neðst) á miðju dekki, annars
vegar mæld með GNSS mælitækni og hins vegar
með þvf að tegra upp mælda hröðunartímaröð,
meðalvindhraðinn á þessum tíma var 12 m/s [7].
Mynd 9. Þríása hröðunarnemi festur utarlega á þvervegg í brúardekkinu.
0.8
0.6
0.4
0.2
0
■ coinputed
• measured °oo 0
8 10 12 14 16
Vx (m/s)
18
0.2
0.1
o o 0.2 0
b 0
6 8 10 12 14 16 18
10
12
14
Mynd 10. Staðalfrávik færslu sem hlutfall af hviðustyrk sem fall af meðalvindhraða, annars
vegar fyrir NNA vindstefnu (vinstra megin) og hins vegar fyrir SSV vindstefnu (hægra megin).
Sýnd er hreyfing þvert á brúna (xþáttur, efst), hreyfing upp og niður (z-þáttur, miðja) og vinda
um langás (t-þáttur, neðst). Sýndar eru bæði mældar (grænir punktar) og hermaðar niðurstöður
(rauðir punktar) [8].
endurbæta tilraunir og reiknilíkön
sem notuð eru við hönnun nýrra
mannvirkja, bæði varðandi atriði
sem tengjast lýsingu eða hermun
áraunar sem og hermun svörunar
mannvirkisins við þeirri áraun.
Hvort tveggja skapar aukið öryggi
í mannvirkjagerð og gefur bæði
hönnuðum og verkkaupum vissu um
að þær hönnunaraðferðir sem notaðar
eru skili vel útfærðu mannvirki sem
getur þjónað því hlutverki sem því
er ætlað. Auk þess nýtast langtíma
mælingar á hegðun mannvirkis við
öryggisvöktun og
rekstur mannvirkisins.
Einnig er mikilvægt að geta
sannreynt gagnsemi nýrrar tækni
við mælingar á áraun og svörun.
Þær tilraunir sem gerðar hafa
verið með mælingar á vindhraða
með lidar mælitækjum í kringum
Lyseíjarðarbrúna hafa verið
sannreyndar með samanburði við
hefðbundnar mælingar með sónískum
vindhraðanemum. Meðal annars í
ljósi þeirra niðurstaðna er verið að
undirbúa vindmælingar með Lidar
mælitækjum í Bjarnarfirðinum
sunnan við Björgvin og víðar þar sem
þveranir eru áætlaðar. Markmiðið er
að safna gögnum sem geta nýst við
hönnun fyrirhugaðra mannvirkja.
67