Læknablaðið - 01.11.2023, Qupperneq 50
534 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
B R É F T I L B L A Ð S I N S F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S
Samkvæmt Sóttvarnastofnun Evrópu
sambandsins (ECDC) deyja að minnsta
kosti 35.000 manns af völdum sýkla
lyfjaónæmra sýkinga í ESB/EES árlega.1
Óskynsamleg notkun sýklalyfja, óhófleg
notkun eða rangt val á lyfjum, getur
stuðlað að ónæmi baktería. Greiningar
á vissum ónæmum bakteríum, svo sem
ESBLmyndandi E. coli, hafa aukist hér
lendis síðustu ár en á Íslandi er samt lágt
hlutfall ónæmis miðað við Evrópulönd.2
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gaf út að
gerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi árið
2015 og það sama gerði ECDC árið 2017.3,4
COVID19 faraldurinn árin 2020 til 2022
setti þó strik í reikninginn og athygli al
þjóðastofnana beindist að heimsfaraldr
inum meðan önnur verkefni biðu.
Nú beinast sjónir manna að sýkla
lyfjaónæmi á ný. Ráð ESB samþykkti á
þessu ári tilmæli sem eiga að efla að
gerðir gegn sýklalyfjaónæmi, og stuðla
Anna Margrét Halldórsdóttir
yfirlæknir á sóttvarnasviði Embættis landlæknis
Vitundarvakning: Aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi innanlands og utan
að skynsamlegri notkun sýklalyfja
hjá mönnum og dýrum. Innan ramma
EU4Health mun ESB veita fjármagni
til evrópskra samstarfsverkefna til að
styrkja vinnu í þessum málaflokki, til
dæmis með landsaðgerðaáætlunum,
samræmdri vöktun og fræðslu. Ísland
er meðal 30 Evrópulanda sem eru aðilar
að EUJAMRAI 2 verkefninu (European
Joint Action on Antimicrobial Resistance
and Healthcare Associated Infections2)
sem hefst 2024.
Fyrir tæpu ári var skipaður starfshóp
ur um aðgerðaáætlun fyrir Ísland í sam
starfi þriggja ráðuneyta. Starfshópurinn
hefur það hlutverk að móta framtíðarsýn
til tíu ára og aðgerða og framkvæmda
áætlun til næstu fimm ára, auk þess að
vinna að vitundarvakningu í samfé
laginu.
Heildarsala sýklalyfja árið 2022 var
svipuð og árið 2019. Salan náði hámarki
árið 2017, en dróst svo saman, sérstak
lega árin 2020 og 2021. COVID19 far
aldurinn hafði þau áhrif að draga úr
tíðni annarra sýkinga og notkun sýkla
lyfja. Nú virðist staðan orðin svipuð
og fyrir faraldurinn. Sýklalyfjanotkun
á Íslandi er meiri en á hinum Norð
urlöndunum (sjá mynd) en þau vinna
þegar eftir landsaðgerðaáætlunum
gegn sýklalyfjaónæmi. Þá eru ávísanir á
tetracýklínsýklalyf hérlendis sérstaklega
margar í evrópskum samanburði.2
Miklu máli skiptir að vanda val á
sýklalyfjum við meðhöndlun sýkinga
og nota sem þröngvirkust sýklalyf. Hins
vegar hefur skortur á sýklalyfjum, sér
staklega þröngvirkum penicillínum,
verið tilfinnanlegur. Lyfjaskortur er al
þjóðlegt vandamál og tekur Lyfjastofnun
þátt í norrænu og evrópsku samstarfi til
að bregðast við því. Framkvæmdastjórn
ESB, samtök forstjóra Lyfjastofnana á
EESsvæði og Lyfjastofnun Evrópu gáfu
nýlega út ráðleggingar til að sporna
við skorti á nauðsynlegum sýklalyfjum
veturinn 20232024.2 Einungis með sam
stilltu átaki lækna, stofnana og stjórn
valda næst árangur gegn útbreiðslu
sýklalyfjaónæmis.
Notkun sýklalyfja (J01) utan sjúkrahúsa á Norðurlöndunum árin 2012-2021 samkvæmt ESAC-Net, mæld
sem dagsskammtar (DDD) á 1000 einstaklinga á dag.2
Heimildir
1. European Centre for Disease Prevention and Control.
Assessing the health burden of infections with antibiot
icresistant bacteria in the EU/EEA, 20162020. ECDC,
Stokkhólmi 2022.
2. Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönn
um og dýrum á Íslandi 2022. Skýrsla unnin í samstarfi
við Lyfjastofnun, Landspítala og Matvælastofnun.
Ritstj.: Halldórsdóttir AM. island.is/syklalyfjaanaemi
ogsyklalyfjanotkun/skyrslur september 2023.
3. Global Action Plan on Antimicrobial Resistance.
I. World Health Organization 2015. who.int/
publications/i/item/9789241509763 október 2023.
4. A European One Health Action Plan against
Antimicrobial Resistance (AMR). European
Commission 2017. health.ec.europa.eu/system/
files/202001/amr_2017_actionplan_0.pdf október
2023.