Læknablaðið - 01.11.2023, Qupperneq 53
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 537
B A R N A L Æ K N I N G A R
Í læknanáminu fannst mér flest áhuga
vert sem ég var að fást við á hverjum
tíma í verknámi. Þá var ég ekkert að
velta fyrir mér af alvöru hvaða sérgrein
ég myndi velja. Nokkrar sérgreinar
skildu meira eftir sig en aðrar og margir
sérfræðingar voru góðar fyrirmyndir
sem maður leit mjög upp til. Stærsta fyr
irmynd mín hefur þó alltaf verið faðir
minn heitinn, Pálmi Frímannsson, sem
var heilsugæslulæknir í Stykkishólmi.
Hann hafði mikinn áhuga á forvörnum
og lýðheilsu og var góð fyrirmynd hvað
varðar heilbrigt líferni og umhyggju fyr
ir öðrum.
Á kandídatsári hafði ég samband við
yfirlækni á barnadeild því mig langaði
til að vinna þar sem deildarlæknir. Þetta
reyndist örlagarík ákvörðun því það
hvarflaði aldrei neitt annað að mér eftir
þetta en að verða barnalæknir. Andinn
á barnadeildinni var góður og þar voru
margir frábærir sérfræðingar sem gerðu
þennan tíma ógleymanlegan. Það sem
heillaði mig við barnalækningar voru
auðvitað samskiptin við börnin og
fjölskyldur þeirra en einnig áhugi minn
á næringu, þroska og velferð barna
almennt. Ég hugleiddi ekki sérstaklega
að það gæti verið erfitt að vinna með
mikið veik börn en hef áttað mig mun
betur á því í seinni tíð.
Örlögin höfðu gripið í taumana án
þess að ég áttaði mig almennilega á því.
Hörður Bergsteinsson nýburalæknir
kom að máli við mig og hvatti mig til
að sækja um sérnám í barnalækning
um við University of Connecticut þar
sem margir íslenskir barnalæknar hafa
stundað nám. Hörður hélt góðu sam
Jóhanna Guðrún Pálmadóttir
barnalæknir, sérfræðingur í næringar- og
meltingarsjúkdómum barna
Starf barnalæknis er fjölbreytt og gefandi
bandi við prógrammstjórann þar úti og
gaf meðmæli sem tekið var mark á. Mað
urinn minn, sem er Íslendingur en fædd
ur í Bandaríkjunum, vildi fara þangað
aftur. Það lá því beinast við að við fær
um þangað og ég hef aldrei séð eftir því.
Árin í Hartford í Connecticut urðu sjö
talsins, þar sem ég varð svo fyrsti sér
námslæknir þeirra í nýju prógrammi
í næringar og meltingarsjúkdómum
barna.
Við ákváðum að vera lengur í Banda
ríkjunum eftir að náminu lauk en ég
var með grænt kort og gat því unnið
hvar sem var. Maðurinn minn er verk
fræðingur og gat
unnið allan tímann
sem við vorum úti
og var einnig í MBA
námi. Það breytti
miklu fyrir aðstæður
okkar sem fjölskyldu
þarna úti. Ég réði mig
til starfa við Medical
University of South
Carolina í Charleston,
yndislegri borg á suð
austurströndinni. Við
vorum þar í fimm ár, svo árin úti urðu
samtals 12. Það var ómetanleg reynsla
að stíga fyrstu skrefin sem sérfræðing
ur með góða kollega sér við hlið og
öðlast enn meiri reynslu. Fyrir mig sem
meltingarlækni var einnig mikilvægt að
framkvæma margar speglanir og öðlast
færni sem auðvelt var að viðhalda.
Ég held að ég hafi alltaf vitað innst
inni að ég kæmi til baka til Íslands.
Sú ákvörðun kom smám saman þegar
maður fór að velta fyrir sér framtíð fjöl
skyldunnar. Við gefum svo mikið af
okkur í þessari vinnu og ég fann að mig
langaði að sinna starfinu mínu á Íslandi.
Ég var svo lánsöm að fá fullt starf á
Barnaspítala Hringsins árið 2019 en það
sem breyttist við heimkomuna var að
ég fór að sinna almennum barnalækn
ingum aftur samhliða undirsérgrein
inni. Það var viss áskorun en ég er farin
að kunna að meta þann hluta starfsins
betur með hverju árinu þó vissulega
taki það tíma frá undirsérgreininni.
Þar eru verkefnin óþrjótandi. Mér
finnst frábært að vinna náið með öllum
sérgreinalæknunum og í teymisvinnu
með fagfólki úr
öðrum starfsgreinum.
Við erum dálítið
út af fyrir okkur á
Barnaspítalanum og
þekkjumst öll vel. Ég
á svo annan skemmti
legan starfsvettvang
á speglunardeild
Landspítala sem gerir
þetta enn fjölbreytt
ara. Við vinnum
einnig náið með svæf
inga og gjörgæslulæknunum og svo
nýt ég góðs af því að eiga góða kollega
í meltingarlækningum fullorðinna sem
eru ávallt tilbúnir að aðstoða okkur og
gefa góð ráð. Ef ég fengi að velja mér
hugðarefni til þess að fást við meðfram
annarri vinnu eða á nýjum starfsvett
vangi seinna á starfsævinni hefði ég
áhuga á að vinna meira með forvarnir,
næringu barna og velferð þeirra al
mennt.
Mér finnst frábært að vinna náið
með öllum sérgreinalæknunum
og í teymisvinnu með fagfólki úr
öðrum starfsgreinum.
Við erum dálítið út af fyrir
okkur á Barnaspítalanum og
þekkjumst öll vel.
S É R G R E I N I N M Í N