Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 01.11.2023, Blaðsíða 54
538 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 L I P R I R P E N N A R Leiðin út, heim og aftur til baka Þorsteinn Heiðberg Guðmundsson hjartalæknir Það var myrkur janúardagur 2016 þegar póstur kom frá kennslustjóranum, núver­ andi og brátt fyrrverandi samstarfsfélaga á Sahlgrenska í Gautaborg. Erindið var gleðilegt, að pláss væri opið á hjarta­ deildinni en skilyrðið fyrir stöðunni var að byrja eftir þrjá mánuði. Með stuttum fyrirvara var fjögurra manna fjölskyldan rifin upp og hús og bíll selt. Tilfinningin að keyra í átt að Keflavíkurflugvelli, allslaus með ekkert á lyklakippunni er sérstök, eftir allt netið sem við höfðum byggt upp á Íslandi. Dvölin erlendis, og þá sérstaklega fyrsta árið, er erfið eins og allir vita sem búið hafa erlendis. Ekki aðeins tungu­ málið, sem kemur þó fljótt, heldur til­ finningin að vera útlendingar í öðru landi og á eigin fótum med þrjú lítil, börn. Sem betur fer styðja Íslendingarnir við bakið hver á öðrum sem gerði dvöl­ ina í byrjun öllu bærilegri. Reynslan af þessu ferðalagi, þá sér­ staklega tengt vinnunni, var þó ómet­ anleg. Á hjartadeildinni á Sahlgrenska er fjölbreytt samfélag lækna með breiða þekkingu sem ég hef í gegnum árin tileinkað mér. Ekki aðeins Svíar og Ís­ lendingar heldur læknar frá Albaníu, Ítalíu, Króatíu, Írak, Póllandi, Rúmeníu, Indlandi og Bandaríkjunum sem lært höfðu við ólíka skóla í Evrópu, Ameríku eða Mið­Austurlöndum. Það opnar augu manns sem hefur varla farið út fyrir eyju í miðju Norður­Atlantshafi að læknis­ fræðimenntunin er þrátt fyrir allt lík og ennfremur háð því hvernig hver og einn nýtir sér verkfærin/þekkinguna sem hann fær eða aflar sér. Jafnvel rannsóknarvinna hefur smám saman kveikt áhuga hjá mér nú undir lokin þar sem ég var plataður í dokt­ orsnám. Í raun er það hneyksli að út­ skrifast með tvöfalt sérfræðileyfi án þess að hafa fengið almennilega menntun í faraldsfræði eða tölfræði og sjá loks nú greinar, jafnvel í virtum tímaritum, með öðrum augum. Þetta er eitthvað sem við getum bætt í grunn­ og sérfræðinámi, ekki eingöngu tengt doktorsnáminu, sem kemur inn seint hjá mörgum okkar. Allt tekur þó enda um síðir og komin heimþrá í flesta fjölskyldumeðlimi. Því að tíminn stöðvast ekki meðan þú ert er­ lendis. Ekkert ósvipað persónu Matthew McConaughey í kvikmyndinni Interstellar sem yfirgefur jörðina í ferð um sólkerfið þar sem tíminn líður hægar og kemur til baka mörgum árum síðar þar sem allir eru farnir nema háöldruð dóttir hans. Kannski ekki alveg sambærilegt þar sem ég hef elst líka en tek hins vegar ekki eftir því. Á þessum tíma hafa nefnilega sumir nákomnir ættingjar farið yfir móðuna miklu eða veikst alvarlega og þegar börnin nálgast unglingsár er erfið­ ara að snúa aftur heim. Ofan á það bæt­ ist COVID­19 faraldur, stríð í sömu álfu, fasteignakreppa og verðbólga. Ég ætla ekki að fara í langdregin og niðurdrepandi smáatriði varðandi endur­ teknar sýningar á fasteign á frosnum markaði, pappírsvinnu og flakk milli landa en staldra aðeins við sjálfa heim­ ferðina. Við héldum til baka frá Gauta­ borg, einum fleiri en 2017, með ferju til Danmerkur og áfram til Íslands með stuttu stoppi í Færeyjum. Það byggist upp enn meiri eftirvænting við þriggja daga ferðalag á miðju Atlantshafi. Þegar komið er upp á þilfar á degi þrjú á ágúst­ morgni tekur hörð norðaustanátt á móti manni og þegar loks glittir í Dalatanga­ vita og síðan Skálanesbjarg (mynd) renn­ ur það upp fyrir mér að næstum 7 ára ferðalagi er loks lokið. Við erum komin heim. Þegar þessi grein er skrifuð er ég þó aftur kominn til Gautaborgar í nokkr­ ar vikur að ganga frá lausum endum tengdu doktorsnáminu. Eftir stend­ ur borg sem ég þekki í þaula, nýtt tungumál sem allir í fjölskyldunni tala reiprennandi, auk allra kollega og vina sem ég og fjölskyldan höfum kynnst í gegnum árin. Þegar komið er upp á þilfar á degi þrjú á ágústmorgni tekur hörð norðaustanátt á móti manni og þegar loks glittir í Dalatangavita og síðan Skálanesbjarg rennur það upp fyrir mér að næstum 7 ára ferðalagi er loks lokið. Við erum komin heim. Gautaborg kvödd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.