Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Side 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Side 31
FYLKIR FERST Nýsköpunartogarinn Fylkir RE 161 hafði verið að veiðum í átta daga. Veiðarnar höfðu gengið erfiðlega, mest sökum sífelldrar brælu á miðunum sem aldrei virtist ætla að slota. Það var enn dimmt að nóttu, klukkan ekki orðin hálfátta um morguninn en karlarnir voru komnir út á dekk. Gunnar Hjálmarsson stýrimaðurinn hafði skipað að nú skyldi hífa. Belgurinn var kominn á hliðina þegar dekkmennirnir sáu skyndilega að ekki var allt með felldu. – Það er dufl í vörpunni, hrópa þeir en í sama bili valt skipið yfir á bakborða, duflið slóst í síðuna og mikil sprenging skók skipið sem lagðist á brúarvænginn. Við sprenginguna gekk allt úr lagi um borð. Ljósavélin þagnaði og svarta myrkur lagðist yfir skipið, hurðir fóru af hjörum og sofandi menn hentust úr kojum, þeirra á meðal skipstjórinn, Auðunn Auðunsson. Í vélarúminu voru vélstjórarnir varla búnir að fóta sig aftur þegar þeir tóku að eiga við ljósavélina sem hrökk í gang vonum fyrr. Auðunn skipstjóri var fljótur að átta sig á þeim skemmdum sem höfðu orðið á skipinu. Komið var gat á fiskilestina og þar fossaði sjór inn í skipið. Það var því léttir þegar ljósavélin tók aftur að mala og dælurnar vöknuðu til starfa. Sú von um að þær hefðu undan sjávarbeljandanum slokknaði þó fljótt. Sjórinn fossaði inn og skipið seig hratt. Því var ekki um annað að ræða en að skipa körlunum frá borði. Það var lán í óláni að vindur hafði gengið ögn niður frá því sem verið hafði dagana á undan. – En í því veðri sem var búið að vera nánast allan túrinn hefðum við ekki komið björgunarbátnum niður óbrotnum, sagði Auðunn skipstjóri síðar. Fáeinir karlanna komust á fleka en voru bráðlega teknir upp í björgunarbátinn sem var þá orðinn afskaplega siginn enda öll áhöfn togarans, alls 32 menn, þar í einum hnapp. Þarna máttu karlarnir velkjast um í þungum sjó í einar þrjátíu mínútur áður en Siglufjarðartogarinn Hafliði kom á vettvang. Hann hafði verið á veiðum skammt undan en tekið inn vörpuna jafnskjótt og loftskeytamaðurinn lét vita af neyðarkalli sem hann hafði heyrt. Úr brúnni sá skipstjórinn, Alfreð Jónsson, líka hvar neyðarblys lýstu upp skammdegismyrkrið. Kúrsinn var settur. Upp úr hádegi þennan sama dag lagðist Hafliði svo að bryggju á Ísafirði. Um borð voru allir 32 skipverjarnir af Fylki, tveir þeirra voru fluttir á sjúkrahús, þó ekki alvarlega slasaðir. Hinum bauð Útgerðarfélag Ísfirðinga hf. í kaffidrykkju í Uppsölum. Seinna um daginn gekk svo öll áhöfninn – að undanskildum þeim tveimur sem enn voru á sjúkrahúsi – um borð í varðskipið Þór sem flutti þá til Reykjavíkur. LOFTSKEYTAMAÐUR SEGIR FRÁ Bárður Gunnarsson, loftskeytamaður hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, rifjaði síðar upp þennan atburð: „Mér er minnisstætt þegar Fylkir RE-161 fékk tundurdufl í vörpuna og sökk um 25 sjómílur norður af Straumnesi. Þetta var í nóvember 1956. Þessa nótt var ég á fyrriparts vaktinni en við loftskeytamennirnir í flotanum höfðum komið okkur saman um vaktaskipti þannig að á miðunum var alltaf einhver vakandi við tækin. Nóttinni var skipt í tvær vaktir og stóð sú fyrri til 3.30 en seinni vaktin endaði undir morgun þegar menn fóru á fætur. Bogi Þórðarson á Aski RE-33 átti að taka við af mér og þegar ég hafði ræst hann fór ég í koju. Það var svo undir morgun að ég Max Pemberton RE 278 fórst 11. janúar 1944 og með honum öll áhöfnin, 29 sjómenn alls. Fylkir RE 161. Nokkru eftir slysið var Auðunn skipstjóri í útvarpsviðtali þar sem hann lagði áherslu á notagildi gúmmíbjörgunarbáta en þá var ekki orðinn einhugur um að þeir ættu að vera skyldubúnaður í íslenskum skipum. Deila má um notagildi tundurduflagirðinga í seinna stríði. Vitað er með vissu að einn þýskur kafbátur fór sér að voða á dufli. Kannski tveir til viðbótar en ekki fleiri.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.