Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2024, Side 36
KYNDARAR
Langflestir nýsköpunartogarnir voru
gufuknúnir sem þýddi að í iðrum skipsins
mokuðu menn kolum. Það var aðeins fyrir
harðduglega og harðgerða menn að standa
í kolamokstri Og þeir urðu að geta mokað
upp á báðar hendur annars varð
starfstíminn stuttur, að minnsta kosti við
kolamokstur. Þetta voru hinir svokölluðu
kyndarar.
Einar Guðmundsson, fæddur á Húsavík í
október 1911 en uppalinn í Grímsey þar
sem umhverfið gerði úr honum þrekmenni,
byrjaði ungur að moka kolum. Hann var á
Lagarfossi – Lagga gamla – Dettifossi – var
í fríi þegar skipið var skotið niður – fór
yfir á Fjallfoss, einn túr. Seinna réðist
Einar til Útgerðarfélags Akureyringa og
var á Kaldbaki. Einar segir frá starfi
kyndarans.
EKKI HAMAST Í ELDINUM
„Kyndarastarfið var ekta þrælavinna,
sérstaklega á Dettifossi. Katlarnir voru
ekkert of stórir og ef skipið var keyrt
eitthvað þurfti mikið af kolum.
Á stríðsárunum vorum við alltaf í
skipalestum – skipunum var safnað saman
og síðan reynt að halda þeim öllum á sama
hraða. Hægast fóru lestirnar 6 mílur en ef
átti að keyra 12 mílur varð lífið erfitt hjá
kyndaranum. Moksturinn var þó ekki
erfiðastur heldur að halda glóð í kolunum.
Kúnstin var að halda eldinum þannig í
eldhólfinu að súrefni næði að streyma í
gegn. Það er nákvæmlega eins með
manninn og eldinn, hvort tveggja þarf nóg
súrefni til að þrífast og dafna.
Kolunum var mokað inn um lúgu á
katlinum, inn á ristar. Við höfðum langar
sköfur til að skafa gjallið út af ristunum og
hnífa til að hreinsa á milli grindanna. Með
löngu járni losuðum við um kolin inni í
eldhólfinu en allt var þetta gert svo að loft
næði að leika um kolin og næra eldinn.
Aldrei mátti lokast á milli ristanna en
maður mátti heldur ekki hamast í eldinum
nema takmarkað, annars varð glóðin ekki
nógu góð.
Öskuna og gjallið skófum við út úr
eldhólfinu á gólfið. Þar var þessu mokað í
fötur og híft upp í gegnum mikla loftventla
og hent í sjóinn. Loftventlar þessir voru
eins og stórir lúðrar á þilfarinu og mátti
36 | Sjómannablaðið Víkingur
Kaldbakur við bryggju á Akureyri. Mynd: Minjasafnið á Akureyri
Einar Guðmundsson
Horfnar starfsstéttir