Mímir - 01.09.1968, Page 37

Mímir - 01.09.1968, Page 37
UM BÆKUR Færeyinga saga. Olafur Halldórsson bjó til prentunar. Jón Böðvarsson cand. mag. samdi verkefni fyrir skóla. Prentsmiðja Jóns Helgasonar h.f. Reykjavík — 1967. Færeyinga saga er nú loks komin út á íslandi í heilu líki, og er það ekki vonum fyrr, að allur almenningur fái greiðan aðgang að þessari perlu íslenzkra fornbókmennta. Utgáfan er í litlu og þægilegu broti, útlit er smekklegt, og hefting mun sterkari en ætla mætti í fyrstu. Fremst í bókinni er smákort af Færeyjum, þá inngangur eftir Olaf Halldórsson, sem þekkir Færeyinga sögu betur en aðrir menn; inngangurinn grein- ist í þrennt: 1) Heimildir sögunnar, 2) Sagan sem listaverk, 3) Handrit og útgáfur. Alls eru þetta ekki meira en 18 blaðsíður, en þar er þó saman kominn allmikill fróðleikur og hugmynd- ir. Einkum er fengur að þeim þætti, er fjallar um söguna sem listaverk, en það er röskur helming- ur inngangsins. Skýringar og athugasemdir um texta eru aftan við söguna, og því næst verkefni fyrir skóla eftir Jón Böðvarsson.* Aftast í bók- inni er rakin ætt Götuskeggja og loks nokkrar leiðréttingar á prentvillum. Myndir frá Færeyj- um prýða bókina. Þessi nýja útgáfa Færeyinga sögu mun ekki hvað sízt ætluð til kennslu í skólum, eins og sjá má af verkefnum þeim, er fylgja. Segja mætti mér þó, að ekki yrðu allir á eitt sáttir um úr- lausn verkefnanna, en er þá ekki tilganginum enn betur náð? Verkefni sem þessi eiga ekki nema að litlu leyti að vera þannig, að nemendur * Þ. e. í heftu útgáfunni, en bókin er einnig gefin út í skinnbandi, og í henni eru skólaverkefnin ekki. geti hugsunarlítið flett „svarinu" upp á ákveð- inni blaðsíðu í sögunni og lært það utan bókar, fremur ættu þau að höfða til sjálfstæðrar hugsun- ar, ályktunargáfu og ímyndunarafls nemend- anna, og sýnist mér, að hér hafi vel til tekizt. Utgáfan er með nútímastafsetningu (ekki á nútímamáli, eins og margir héldu lengi vel um útgáfu HKL á Hrafnkels sögu og Njálu og deildu hart á — óséð), og er því „samræmd stafsetning forn" ekki til að fæla fólk frá lestri bókarinnar. Færeyinga saga greinir frá færeyskum mönn- um á tíundu öld ofanverðri og fram undir miðja þá elleftu, skiptum þeirra við erlent vald og deilum innbyrðis. Sögusviðið er að mestu Fær- eyjar, en langir kaflar gerast þó í Noregi og Danmörku. Raunar gæti heiti sögunnar, Færey- inga saga, valdið misskilningi. Hún er nefnilega ekki saga Færeyinga í víðtækum skilningi, held- ur saga einnar ættar í Færeyjum, Götuskeggja. Sagan er í flestum tilvikum ein til frásagnar. Olafur telur hana skrifaða á Islandi nálægt 1215, margt bendi til að höfundur hafi stuðzt við munnlegar sagnir, sennilega færeyskar. Hann bendir á, að staðþekkingu höfundar sé mjög ábótavant, sennilegt sé þó að höfuðpersónurnar hafi verið til og að „einhver sögulegur sannleik- ur leynist í frásögnum hennar." Olafur gerir hins vegar enga tilraun til að greina á milli skáldskapar og veruleika sögunnar, enda ligg- ur annað beinna við, nefnilega að íhuga list hennar og tilgang. Hvort sem við berum Færeyinga sögu saman við bókmenntir síns tíma (13. aldar) og þá eink- um Islendinga sögur, sem hún er skyldust, eða bókmenntir 20. aldarinnar, eru listræn tök höf- undar á efninu óumdeilanleg. Fremur má deila um tilganginn. Vafalaust er hann margþættur, en einkum virðist höfundi liggja á hjarta að 37

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.