Mímir - 01.09.1968, Page 47

Mímir - 01.09.1968, Page 47
að kynnast þeim yngri og fá þá til samstarfs. Mun vöxtur og viðgangur Mímis væntanlega verða mjög háður starfskröftum hinna yngri á næstunni. Félagið útvegaði félagsmönnum Islenzk fornrit með miklum afslætti í desember s. 1. og einnig Rímnafélagsrit. Seldust um 300 eintök fornrita og talsvert af Rímnafélagsritum. Oánægja ríkir í Mími með herbergi félagsins. Þess vegna sótti Mímir fast að fá herbergi sem deildafélög í væntanlegu félagsheimili, og var það samþykkt í hagsmunanefnd SHI í vetur. Þykjast menn nú sjá hilla undir félagsheimili. Ein merkustu þáttaskil í sögu stúdenta í heimspekideild urðu s. 1. vor, er prófessorar deildarinnar gengu að ósk stúdenta um að eiga fastan fulltrúa á fundum deildarinnar. Sat Kristján Arnason fyrsta fund sem fastur fulltrúi, en undanfarið hefur undirritaður gegnt störfum sem fastur fulltrúi. Eru mörg merk mál til um- ræðu um þessar mundir. Hér skal aðeins getið, að ákveðið hefur verið að framvegis skuli aðeins viðhöfð lokapróf í áföngum. Þarf einkunnina sjö úr hverjum áfanga til kand. prófs, en fyrstu eink.unn til meistaraprófs. Heimilt er að taka fleiri en einn áfanga við lok hvers misseris. Þá er og kandídatspróf í íslenzkum fræðum úr sög- unni, en gert var ráð fyrir þess konar prófi í Auglýsingu um staðfestingu handhafa valds forseta Islands á breytingu á reglugerð nr. 76/ 1958 fyrir Háskóla íslands (1965) 54. gr. I.C. S.l. vetur sat formaður Mímis sem fulltrúi félagsins í hinni svonefndu Stóru samstarfs- nefnd vegna hátíðarhalda 1. des. n. k. Hefur margt verið rætt þar, en fátt ákveðið. Skipuð hef- ur verið ritnefnd fimm manna til útgáfu sérstaks hátíðarrits, og tilnefndi SMI tvo menn, SFHI tvo og Mímir einn. Voru tilnefndir þrír Mímismenn í þá ritnefnd. Einnig var Mími falið að tilnefna einn mann í þriggja manna dómnefnd um hátíð- arljóð, og er alþjóð kunn niðurstaða hennar. Blað félagsins kemur út með líku sniði og verið hefur. Ritnefnd innir ávallt mikið starf af höndum, og ber að þakka það nú sem fyrr. Háskólayfirvöld hafa styrkt útgáfu blaðsins og félagsstarfið fjárhagslega, og er rétt að þakka það hér svo og öllum, sem stutt hafa félag og blað á einn eða annan hátt. Helgi Þorláksson. Skólavörðustíg 19 — Reykjavík Pósthólf 310 — Sími 17500 BLAÐ ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU TIL SJÁVAR OG SVEITA 47

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.