Það bezta - 15.01.1948, Síða 51

Það bezta - 15.01.1948, Síða 51
HVERJUM KLUKKAN CLYMUR ms aranda né á yfírskilvitlcga hluti.“ „En þessi mcð rara nafnið sá örlög sín lj(>slega fyTÍr,“ sagði tatarinn. „Og það gekk alveg eft- ir, líka." „Hann sá ekkert," sagði Ro- bert Jordan. „Hann óttaðist hara þann inöguleika og það varð að sjúklegum átrúnaði. Enginn getur fengið mig til að trúa að hann sæi nokkuð.“ „Ekki ég?“ spurði Pilar hann og gi-eip upp dálítið af ösku- sáldri af aflinum og blés því burtu af lófa sér. „Ég get ekki fengið þig til að trúa því held- ur?“ „Nei. Þrátt fyrir tröllskap, tatarablóð og lófalestur, þú get- ur ekki fengið mig til að trúa því heldur." „Og vegna hvers? Vegna þess að þú ert daufdumbastur allra daufdumbra," sagði Pilar, stór- skorið andlit hennar harðlegt og brcitt í skini kertaljóssins. „Það cr ekki að þú sért heimsk- ur. Þú ert blátt áfrarn lieyrnar- laus. Heyrnarlaus maður getur ekki hlustað á músík, Né heldur getur hann hlustað á útvarp. Svo, hafandi aldrei heyrt. það, gæti hann sagt að slíkir hlutir væru ekki til. Qué va, Inglés. Ég sá dauða þess með rara nafn- ið á andliti hans eins greinilega og það hefði verið brcnnt þar mcð glóandi járni.“ „Ini sást það ekki,“ andæfði Robert Jordan. „Þú sást ótta og kvíða. Óttinn var afleiðing {æss er hann hafði gengið í gegnum. Kvíðinn var af hugsanlegum möguleika hins illa er hann ímyndaði sér.“ „Quc va,“ sagði Pilar. „Ég sár dauðann þar eins greinilega og hann sæti á öxl hans. Og það sem rneira var, hann lyktaði af dauða.“ „Lyktaði af dauða," endur- tók Robert Jordan háðslega. „Af ótta kannski. Óttinn á sér lykt.“ ,,Dc la muerte" sagði Pilar. „Hlustaðu. Þegar Blanquet:, hinn stærsti peon de brega er nokkru sinni lifði, vann í þjón- ustu Graneros þá sagði hann mér að daginn sem Manolo Granero dó, þegar þeir stönz- uðu í kapellunni á leiðinni til víghringsins, hafi dauðadaunn- inn verið S’vo sterkur af Manolo, að Blanquet bafi legið við að selja upp. Og lrann hafði verið hjá Manolo meðan hann baðaði sig og klæddi sig f á hótelinu rétt

x

Það bezta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Það bezta
https://timarit.is/publication/1957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.