Bergmál - 05.01.1954, Blaðsíða 35
1954
B E R G M Á L
Orson Weíles á ferðinni á ný. Nú
hefir hann tekið að sér að flytja í sjón-
varpi leikritið — Lear konungur —
eftir Shakespeare. Og auðvitað leikur
hann sjálfur Lear konung, en það er
leikhlutverk, sem margir hafa talið
illmögulegt að túlka, og án efa erf-
iðasta hlutverk Shakespeare leikrita.
Efsta myndin til hægri sýnir Orson
Welles, sem Lear konung, eftir að
hann er orðinn brjálaður, með hinum
blinda Gloucester, en með það hlut-
verk fer Frederic Worlock.
Myndin efst til hægri er af konungs-
hjónum Grikklands, Páli konungi og
Frederiku drottningu, er þau nýskeð
lögðu upp í ferðalag til Ameríku.
Neðst til hægri er mynd af Tyrk-
nesku dansmeyjunni Nejla Ates, þar
sem hún er að dansa á næturklúbb
í Washington, en Steve Cochran, am-
eríski kvikmyndaleikarinn horfir að-
dáunaraugum á hana. Enda er sagt að
Nejla beiti öllum sínum töfrum og
yndisþokka á þennan myndarlega
ungkarl, síðan hún sneri bakinu við
Sheppard King, erfingja auðugra olíu-
linda.
Myndin í vinstra horni að neðan er
af hinum ítalska Vittorio Gassman,
sem getið er um á öðrum stað í þessu
hefti og jafnframt sézt aftan á heft-
inu. Þessi litla mynd er úr kvikmynd-
inni „Rhapsody", og með honum á
myndinni er hin ameríska Elizabet
Taylor. Sagt er að Vttorio hafi lært
fiðluleik til að geta leikið fyrir Liz
í þessari mynd.
Greer Garson er orðin ungfrú á ný
— að minnsta kosti í kvikmyndum.
Fram til þessa hefir hún sézt í mynd-
um, sem „Frú Chip|“, „Frú Parking-
ton“ og „Frú Miniver", en í næstu
mynd heitir hún kennslukonan, ung-
frú Baker.
33