Bergmál - 05.01.1954, Qupperneq 36
B E R G M Á L--------------
IGIMARASUGSSUGSSUAQ
Framh. af bls. 31.
ur, er hann hóf hairmakvein
sitt, að orðin streymdu af vör-
um hans:
„Ætíð fylgir ógæfan mér ve-
sælum! Jafnan má ég þola þá
sorg að eiga á bak að sjá eigin-
konum mínum!“
Og áður en hann hafði náð
alla leið inn úr göngunum,
heyrðu þeir hversu hann brast
í grát. Bræðurnir reyndu að
hugga hann og sögðu:
„Við því er ekkert að gera.
Þefta er gangur lífsins. Eiigi
Kvikmyndaleikkonan Joan Evans og
maður hennar Kirby Weatherly bíla-
kaupmaður, héldu nýskeð upp á papp-
írsbrúðkaup sitt, því að þau hafa ver-
ið gift í eitt ár. Kirby færði þá konu
sinni að gjöf nýjan Packard, svo að
nú getur hún ekið á hverjum degi inn
í Los Angeles ýmist til að snæða há-
degisverð með manni sínum eða
kaupa nýja eyrnahringi, sem er henn-
ar mesta ástríða.
í kvikmyndaheiminum eru nú sagð-
ar þær fréttir markverðastar, að Greta
Garbo ætli að gefa kost á sér til að
leika í kvikmyndum á ný. — í þetta
skipti muni hún leika í ítalskri kvik-
mynd, á móti og jafnframt undir
stjórn Vittorio de Sica. Kvikmyndin
er sögð fjalla um miðaldra hjón og
nefnast „Hann og hún“.
__________________ JANÚAR
verður feigum forðað!“ Þeir
lögðu sig fram um að reyna að
létta sorg hans, og stilla grát
hans og harmakvein, og að lok-
um sagði einn þeirra:
„Varpaðu nú frá þér allri sút,
og reyndu að drekkja sorg þinni,
með því að syngja gamanvísur,
eins og þér er lagið, þegar allt
leikur í lyndi.“
Þar kom, að honum virtist
hægja og brátt tók hann gleði
sína á ný. Og er hann að lokum
hóf gamanvísnasöng sinn og
dansaði um gólfið, til þess að
skemmta bræðrunum, með hin-
um furðulegustu fettum og
brettum, heyrðist skyndilega
grafarraust einhvers staðar
neðan úr jörðinni, sem sagði:
„Igimarasugssugssuaq étur
konur sínar.“ Hann hætti strax
að dansa og spurði:
„Hver segir það?“
„Það segir Masaunaq!“ svar-
aði raustin.
Igimarasugssugssuaq reyndi
að ljúga sig út úr vandræðunum
og sleppa á brott. En vart hafði
hann risið til brottfarar, er
bræðurnir hrópuðu í kór:
„Masaunaq! Komdu fram úr
fylgsni þínu og hefndu þín á
bónda þínum.“
'Masaunaq kom samstundis
fram úr holunni í gólfinu, sem
34