Bergmál - 05.01.1954, Page 52
B E R G M Á L------------------
Brad sá -þaS fyrir hugskots-
sjónum sínum hvernig Cara var.
— Smávaxin og veikluleg kona,
að vísu fögur í andliti, en þó
gjörsneydd öllu lífi og tilfinn-
ingum, eins og hún lifði í ein-
hverjum ókunnum, fjarrænum
heimi. Brad leið ekki vel í ná-
vist hennar. Hann gat alls ekki
skilið hvernig Stefán, þessi
hvatlegi og þróttmikli strákur,
hefði orðið hrifinn af þessari
konu, sem var svo sérkennilega
köld og fráhrindandi.
„En svo flaug honum skyndi-
lega í hug, að ósanngjarnt væri
að gagnrýna þessa ungu stúlku,
svo stuttu eftir dauða manns
hennar. Cara hafði vafalaust
ekki náð sér enn, eftir hið
skyndilega og óvænta fráfall
Stefáns. Brad fylgdist með konu
sinni upp til herbergis tengda-
dótturinnar.
Hjúkrunarkonan hafði greitt
hár ungu konunnar aftur frá
enninu. Hún er yndisleg, hugs-
aði Madeleine um leið og hún
beygði sig yfir vöggu litla snáð-
ans. Upphátt sagði hún: „Er
hann ekki dásamlegur? Sjáðu
Brad, hann hefir fengið hend-
urnar þínar, og-----“ hún hik-
aði við, „— og munnsvipinn
hans Stefáns.“
Cara brosti til hennar. „Já, ég
___________________ JANÚAR
gæti trúað því, að þegar hann
fer að tala, verði hann alveg
eins og pabbi hans var,“ hún
bað guð í huganum að fyrirgefa
sér, að hún skyldi tala þvert um
hug sér við gömlu hjónin.
Brad hélt á pípunni sinni í
hendinni og horfði næstum
ögrandi á tengdadóttur sína, er
hún sagði þetta. Cara sá, að hann
vildi helzt komast á brott, sem
fyrst.
„Við stöndum ekki lengi við,“
sagði hann, „á morgun verður
þú hressari.“
Ýmsar hugsanir brutust um
í höfði ungu konunnar. Föður
Stefáns geðjast ekki að mér.
Hann skilur það, að ást okkar
var kulnuð áður en hann dó, og
hann kennir mér um það. Hún
kvaddi gömlu hjónin fremur
kuldalega.
Síðar, þetta sama kvöld, sagði
Brad við konu sína: „Það er
eitthvað í fari hennar, sem ég
felli mig ekki við. Það er eins
og hún sé hrædd og kvíðin. Eins
og hún vilji halda sér í hæfilegri
fjarlægð frá okkur, og óski þess
helzt, að við gerðum það einn-
ig.“ Hann starði niður á kalda
öskuna í pípu sinni og muldraði:
— „Það er annars undarlegt, að
50