Bergmál - 01.04.1954, Page 36
Apríl
Bergmál ---------------------
Framh. af bls. 32.
Um tíuleytið tók hún saman
handavinnu sína, og gekk inn í
baðherbergið. Hún lokaði bað-
herbergishurðinni svo hressi-
lega á eftir sér, að Hank hafði
mesta löngun til að hrópa á eftir
henni: „Þú getur verið alveg
óhrædd, ég mun ekki ónáða
.Þig-“
Honum fannst hann vera snið-
genginn. Undir venjulegum
kringumstæðum, hefði hann
farið að minnsta kosti einu sinni
inn til hennar, á meðan hún var
í baðinu. „Á nokkuð að þvo
frúnni um bakið í dag?“ — —
En í þetta skipti sat hann graf-
kyrr á sínum stað, haldinn hinni
dýpstu meðaumkvun með sjálf-
um sér, þar til hann heyrði
skvamp og busl, sem gaf til
kynna, að Libby hefði loks
fengið nóg af að liggja í bleyti.
Þá stóð hann á fætur.
Hann bjó um svefnsófann
með æfðum höndum, en allt
annað en í góðu skapi, og sett—
ist því næst í stólinn á ný.
Sjálfsmeðaumkvun hans var nú
all-mjög blandin gremju. Hvaða
rétt hafði hún til að vera önug?
Hann hefði verið alveg til í að
fara í gönguferð, það var ekki
hann, sem hafði breytt um skoð-
un. Ef einhver hafði ástæðu til
að vera önugur, þá var það
hann.
Dyrnar að baðherberginu
opnuðust. Hank lokaði augun-
um og lézt sofa. En er hann
heyrði Libby opna skúffu, gaut
hann hornauga til hennar, og
komst að þeirri niðurstöðu, að
svipur hennar var jafn drýldinn
og áður. Hún var komin í gömul,
slitin náttföt, sem bróðir hennar
hafði átt, og þegar hann sá það,
jókst gremja hans enn. Það var
eins og hún rændi hann ein-
hverju, sem honum bar, með
því að fara í þessi náttföt. Libby
vissi náttúrlega ekkert um þær
hugrenningar, sem hún hafði
orðið völd að, og fór nú að
trekkja upp úrið sitt.
„Þú trekkir samt úrið þitt
upp á kvöldin," sagði Hank.
Hún leit ekki á hann. „Ég hefi
alltaf gert það.“
„Það er ekki þar með sagt, að
það sé heppilegasti tíminn til
þess. Úrsmiðurinn segir, að það
fari betur með fjöðrina, að
trekkja það upp á morgnana.“
Jfún yppti öxlum. „Hvað ætli
hann viti um það? Og hvað sem
því líður, þá ætla ég að trekkjt
mitt úr upp á kvöldin, hér eftir
eins og hingað til. Þetta á víst
34