Bergmál - 01.09.1957, Side 56
13 F. R G M Á L -------------------------------- SEPTEMBER
föl og alvarleg. En allt í einu gleymdi hún ungu stúlkunni og spurði
hvasst:
„Þú ætlar þó ekki að fara að segja mér að þú hafir trúlofast
Errol?“
„Nei, ég er alls ekki trúlofuð neinum ennþá. En þó get ég sagt
ykkur dásamlegar fréttir.“ Sandra stökk á fætur snarleg og liðleg
í hreyfingum og stóð teinrétt fyrir framan guðmóður sína, eldrauð
í kinnum og með leiftrandi augu. Það verður að vísu ekki sagt frá
því opinberlega fyrr en eftir nokkra daga, en það er það, að ég
hef skrifað undir samning við Serge Boronoff.“
„Nei, hvert í logandi," hrópaði Lady Amanda, „og ég sem hélt að
hann væri dauður.“
„Elskan mín, hann er alls ekki dauður, hann er enn í dag fræg-
asti ballettstjórnandi heimsins, hann býr í New York og ég er á för-
um til Ameríku til þess að dansa undir hans stjórn næstu tvö ár og
ég fæ að dansa alla klassisku ballettana, Svanavatnið, Hnetubrjót-
inn, Coppeliu og alla hina, ef til vill lætur hann mig slíta mér upp
til agna, en ég skal sýna ykkur það að ég skal standa mig, og hann
sagðist þora að sverja það að ég yrði stórt nafn meðal allra ballett-
dansara á öllum tímum eftir að hann væri búinn að þjálfa mig og
ég búin að vinna hjá honum þessi tvö ár.“
„En kæra barn,“ sagði Lady Amanda, svolítið stíf. „Ég vissi ekki
betur en þú ætlaðir að dansa í París í október, hvernig fer nú með
Errol?“
Eitt andartak brá fyrir skugga á andliti Söndru. „Hann má sjálf-
um sér um kenna,“ sagði hún. „Samningurinn sem ég hafði var út-
runninn á meðan ég lá veik og hann var svo reiður yfir þessu bíl-
slvsi sem ég lenti í, að hann hugsaði aldrei um að fá mig til að skrifa
undir nýjan samning og svo þegar hann hafði komið alveg hræði-
lega leiðinlega fram við mig, þá tók hann það sem gefið að allt slíkt
myndi falla í ljúfa löð og ég fara að hans óskum. í fyrstu var ég að
vísu ekki svo langt frá því að láta að vilja hans, en svo kom Boron-
off eins og bruma úr heiðskíru lofti. Hann brá sér sem snöggvast til
London alla leið frá New York þar sem hann hefur nú aðalaðstur-
stað og hann gerði mér tilboð, sem ég að sjálfsögðu tók strax, ég var
54