Bergmál - 01.09.1957, Síða 62
B K H G M Á L ------------------
Brosfð dularfulla
Framh. af bls. 32.
leiðslu guðs. Illmenni hafði
vegna girndar sinnar til annarr-
ar konu myrt eiginkonu sína.
Mánuðum saman hafði hann
notið syndarinnar í ímynduðu
cryggi — aðeins til að hrapa
þeim mun snögglegar í eigin
gröf. „Upp koma svik um.síðir,“
og hér var sönnunin. Lesendur
blaðanna gátu greint hand-
leiðslu guðs stig af stigi. Óljós
en þrálátur orðrómur hafði ver-
ið á sveimi um nágrennið, loks-
ins hafði lögreglan rankað við
sér. Síðan var líkið grafið upp,
þá var rannsókn læknaráðsins,
réttarkrufningin, vitnaleiðsla
sérfræðinga, álit sakadómsins,
réttarhöldin sjálf og síðast dóm-
urinn. Forlögin láta ekki að sér
hæða í þetta sinn, dómur þeirra
var áhrifamikill, umsvifalaus og
harður — eins og í leikriti. Dag-
blöðin gerðu rétt í að mata
hungraða lesendur sína á þess-
ari safaríku fæðu í heilan mán-
uð.
Þegar Hutton var kvaddur frá
ítalíu til yfirheyrslu, var hann
í fyrstunni reiður. Það var fá-
heyrt, hrein ósvífni að lögreglan
skyldi leggja eyrun við illgjörn-
---------------- September
um kviksögum. Þegar rannsókn-
inni væri lokið ætlaði hann að
höfða mál gegn lögreglustjóran-
um fyrir ofsókn á hendur sér;
og hann ætlaði að stefna þessari
ungfrú Spence fyrir meiðyrði.
Rannsóknin hófst. Sönnunar-
gögn gegn honum komu í leit-
irnar hvert af öðru. Læknarnir
höfðu rannsakað líkið og fundið
merki um arsenik; þeir töldu að
frú Hutton hefði látizt af völd-
um arsenikeitrunar.
Arsenik — Emily hafði dáið
af arsenikeitrun? Næst komst
Hutton að því, að í gróðurhús-
inu hans væru nægar birgðir af
arsenik-skordýraeitri til að strá-
drepa heilan her.
Honum varð allt ljóst í einni
svipan: Líkurnar voru gegn hon-
um. Hann sá þær aukast og vaxa
dag frá degi eins og risastóra
hitabeltisplöntu — hún fléttað-
ist kringum hann, umvafði hann.
Hann var villtur í myrkviði.
Hvenær hafði hún tekið eitrið?
Sérfræðingum kom saman um
að þess hefði verið neytt átta
eða níu klukkustundum fyrir
andlátið. Um kvöldmatarleytið?
Já, um kvöldmatarleytið. Vinnu-
stúlkan, Klara, var kvödd sem
vitni. Frú Hutton hafði beðið
hana að sækja meðalið, sagði
60