Goðasteinn - 01.09.2009, Side 41

Goðasteinn - 01.09.2009, Side 41
Goðasteinn 2009 var. Landamerki jarðanna hafi þá legið eftir dalbotninum. Ekki er ólíklegt að svo hafi verið þar sem skógareign Dalstorfujarða í Húsadal var allur skógur suðaustan megin í dalnum að vatnsfarveginum sem liggur eftir dalbotninum en ekkert norðan við hann. Að byggð hafi verið mikil á einhverjum stað á Mörkinni bendir til þess að þar hafi landnámsbærinn verið því að eftir að búið var að skipta henni í þrjár jarðir getur tæplega hafa verið mikil byggð á einum stað þrátt fyrir þau landgæði sem þar hafa verið áður en land fór þar að blása upp. í Oddamáldaga í Vilknisbók frá árinu 1397 segir að Oddakirkja eigi „hálfan afrétt í miðja Mörk“ sem hlýtur að merkja: Hálfan afrétt á miðhluta Þórsmerkur og hún hafi því ekki átt hálfan afréttinn Þórsmörk, heldur hálfa eyðijörðina sem lá miðsvæðis á Mörkinni en hinn helming jarðarinnar hefur Holtskirkja verið búin að eignast áður með skóginum. Þetta sérstaka orðalag á máldaganum virðist síðan hafa leitt til þess að farið var að kalla Þórsmörk í miðja Mörk eða Miðmörk. Þegar það nafn hafði tekið við af nafninu Þórsmörk sem líklega hefur viðgengist um aldir lá beint við fyrir Odda- presta að eigna kirkjunni hálfan beitanætt á henni allri. Land jarðarinnar sem frenrst var á Mörkinni hefði þá verið Langidalur, Vala- hnúkur og Húsadalur suðaustan við farveginn í botni dalsins, ásamt því landi sem er þar fyrir vestan. Nálægt miðju þessu svæði eru tvær fornar bæjarrústir sem blásið hafa upp. Önnur þeirra hefir í manna minnum verið nefnd Þuríðarstaðir. Hin rústin mun hafa farið að koma í ljós við uppblástur um 1944 en hún er um 300 metra suðvestur frá Þuríðarstöðum og hefur hún verið nefnd Þuríðarstaðir efri eða Ásbjarnarstaðir. Bæði eru þessi bæjarstæði forn, samkvæmt rannsóknum á hlutum sem þar hafa fundist. Þau eru greinilega bæði á sömu jörðinni en hvort þar hefir einhvern tíma verið tvíbýli er ekki gott að segja. Líklegra er að þau séu hvort frá sínum tíma en bærinn verið færður. Á landi þessarar jarðar átti Dalur undir Eyjafjöllum meginhlutann af öllum skógi samkvæmt skjalfestum vitnisburði frá árinu 1599. í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1709 segir að landið umhverfis Þuríðarstaði, ásamt Húsadal sé brúkað fyrir afrétt úr Fljótshlíð. Þessi frásögn jarðabókarinnar styður þá túlkun máldaga Oddakirkju frá 1397 að hún eigi hálfan beitarrétt á miðjörðinni á Þórsmörk og um leið þá ályktun að Þórsmörk hafi verið skipt í jarðir á meðan þar var byggð. Samkvæmt þessum heimildum virðast afréttarréttindi Oddakirkju vera á miðjörðinni en bændur í Fljótshlíð brúki fremstu eða fremri jörðina fyrir afrétt og stórbýlisjörðin Dalur hafi átt meginhlutann af skóginum á fremsta hluta Merkur- innar um aldamótin 1600. Þetta bendir til þess að auðmennirnir sem bjuggu í Dal á fyrri öldum hafi átt þann hluta, þ. e. fremstu jörðina, þegar byggð lagðist þar af eða síðar. 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.