Goðasteinn - 01.09.2009, Blaðsíða 42

Goðasteinn - 01.09.2009, Blaðsíða 42
Goðasteinn 2009 Innsta jörðin á Mörkinni hefði þá verið frá Góðagili að sunnanverðu og Rjúpnafellsgili að norðanverðu inn að jökli. Það hefur að vísu verið lakasta jörðin nema eitthvað meira land hafi komið til. Svo gæti verið að þar sem talað er um þrjá bæi á Þórsmörk séu Steinfinnsstaðir taldir með þó að þeir séu ekki á Þórsmörk sjálfri. Þeir eru á Kápu á Almenningum, rétt innan við Þröngá sem er í mörkum milli þeirra og Þórsmerkur og þeir hafi þá verið innsti bærinn af þessum þremur bæjum sem þarna er talað um. Hugsast gæti iíka að innsta jörðin á Mörkinni hafi legið undir Steinfinnsstaði því að þar hefur vetrarbeit verið miklu betri í snjóavetrum en á Steinfinnsstöðum en land þessarar jarðar eitt og sér hefur sennilega ekki verið nóg nema til kotbúskapar. Talið er að Steinfinnsstaðir hafi verið í byggð um það bil jafnlengi fram eftir öldum og Þuríðarstaðir á Þórsmörk. Það er byggt á munurn sem fundist hafa í rústum bæjanna en ekki er líklegt að hægt hafi verið að búa þar eftir að hlýinda- skeiði landnámsaldar lauk og mjög erfitt í miklum snjóavetrum án þess að geta notað vetrarbeit fyrir sauðfé á Þórsmörk sjálfri. I Njálssögu segir að þau Björn hvíti og Valgerður áttu gnótt í búi. Því ber vel saman við það að vetrarútigangur sauðfjár var talinn öruggari á miðhluta Þórs- merkur en annars staðar í Rangárvallasýslu þegar ær voru látnar ganga úti á Mörk- inni á nítjándu öld og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu. Allir skógar Holtskirkju á Þórsmörk munu hafa verið á miðhluta hennar eða á því svæði þar sem líklegast er að jörð Björns hvíta hafi verið. Það lítur því út fyrir að eigendur eða ábúendur Holts hafi að minnsta kosti einhvern tíma fyrir 1270 átt miðhluta Þórsmerkur og þá lagt undir Holtskirkju allan eða mestallan skóginn þar. Beitarrétturinn hafi síðar, eftir að hætt var að búa á jörðinni, komist í eigu Oddakirkju. Talið er að á 13. öld hafi nytjaskógur verið orðinn svo eyddur frammi í byggðinni í Landeyjum og Eyjafjallasveit að þar hafi ekki lengur verið hægt að gera til kola. Þá hefur hið mikla skóglendi fyrir innan byggðina verið orðið verðmætt því viðarkol voru á þeim tíma nauðsynjavara. Þá var líka mikil þörf fyrir raftvið til húsagerðar. Á þessum tíma hefur skóglendið á Þórsmörk verið mjög verðmætt því að þar hefur birkiskógurinn verið stórvaxnari en víðast annarsstaðar á þessum slóðum. Skógarnir á þeim hluta Þórsmerkur þar sem jörð Björns var, hafa því líklega verið verðmeiri en beitin þótt hún hafi verið mjög góð. Af þeim ástæðum er orðalag máldaga Oddakirkju um beitarréttinn í Þórsmörk, eftir mínum skilningi, eðlileg: „Hálfan afrétt í miðja Mörk“. Sem útleggst: Hálf miðjörðin á Þórsmörk. Á fyrri hluta 13. aldar bjó í Holti undir Eyjafjöllum auðugur bóndi, Hólm- steinn Grímsson. Hann var afkomandi hinna fornu Holtsverja. Kona hans var Guðrún, dóttir Orms á Breiðabólsstað Jónssonar, Loftssonar, í Odda. Sonur þeirra 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.