Goðasteinn - 01.09.2009, Qupperneq 68
Goðasteinn 2009
Snorrastofu. Til að geta staðið undir einstökum verkefnum er starfsmönnum
stofnunarinnar gert að leita fjármagns eftir ýmsurn leiðum. Tekið er sérstakt
umsýslugjald af verkefnum en það getur numið allt frá 5% upp í 25% af hverjum
styrk sem til þeirra fæst.
Unnið er með markvissum hætti að eflingu Snorrastofu sem rannsóknar-
stofnunar. Til viðbótar því sem stofnunin hefur nú þegar eða er að öðlast þyrfti
hún fleiri starfsmenn og talsvert aukið rekstrarfé. Fjármagn til stórra verkefna þarf
að sjálfsögðu að koma úr mörgum áttum, m.a. úr norrænum sjóðum. Fjármagnið
mun ekki koma frá einkaaðilum nema að litlu leyti, því miður, en þetta er ekki
eingöngu okkar reynsla, heldur einnig annarra í svipaðri starfsemi (sama gilti fyrir
og eftir bankahrunið haustið 2008—aths. höf.).
Uppbygging Snorrastofu lýtur annars vegar að rannsóknar- og fræðastarfi, sem
m.a. felst í fleiri rannsóknarverkefnum, námskeiðahaldi, aukinni bókaútgáfu,
ráðstefnuhaldi, eflingu rannsóknarbókasafns o.s.frv. og hins vegar að styrkingu
miðlunar með áhugaverðri margmiðlunarsýningu og frágangi óvenju merkilegra
fornleifa. Unnið er út frá heildarsamhenginu í Reykholti og nágrenni en sá mikli
áhugi sem að undanförnu hefur verið, bæði innanlands og erlendis, á að taka þátt í
rannsóknarverkefnum, dvelja í Reykholti vegna rannsóknanna, sækja ráðstefnur
og fundi eða njóta sýningarefnis er vonandi einungis upphafið að því sem koma
skal. Ahuginn á Snorra er vitaskuld alþjóðlegur enda þótt hann sé mismikill eftir
þjóðum. Áhuginn er auðvitað mestur hjá Norðmönnum en Svíar hafa einnig
mikinn áhuga á Snorra og íslenskri fornmenningu. Athygli Norðmanna beinist
fyrst og fremst að Heimskringlu en áhugi Svía og í raun flestra annarra, t.d. Breta,
Þjóðverja, Ástrala og Bandaríkjamanna, að SnoiTa-Eddu.
Rannsóknir og annað starf Snoirastofu sem í öllum tilfellum er unnið í sam-
vinnu við helstu stofnanir forníslenskra fræða, bæði hér á íslandi og erlendis, hafa
það markmið að efla rannsóknir á íslenskum menningararfi og handrita- og
bókmenningu. Um leið vinnur Snorrastofa að uppbyggingu minjagarðs í Reyk-
holti ásamt því að halda uppi öflugu menningarstarfi en forsendur slíkrar starfsemi
eru vitaskuld vandaðar rannsóknir.
Snorrastofa hefur fram til þessa haft frumkvæði að eða tekið þátt í ýmsum
alþjóðlegum og þverfaglegum rannsóknarverkefnum, öllum í samvinnu við
norræna háskóla og rannsóknartengslanet. Umfangsmestu verkefnunum til þessa
hefur lokið með útgáfu fræðirita. Fjölmargar greinar með niðurstöðum rannsókna
hafa birst í tímaritum og bókum en auk þess hefur Snorrastofa sjálf á sl. 7 árum
gefið út fimm vísindarit og eru fleiri slík væntanleg. Unnið er að nokkrum stórum
verkefnum, m.a. rannsóknarverkefni um norræna goðafræði, úrvinnslu hins sk.
Reykholtsverkefnis, rannsóknum á 13. aldar bæ, miðaldakirkju og mannvirkjum
miðaldahitaveitu í Reykholti, rannsóknum á borgfirskum seljum í tíð Snon'a
66