Goðasteinn - 01.09.2009, Side 156
Goðasteinn 2009
Þegar Ragnhildur fæddist hafði faðir hennar nýverið fengið veitingu
fyrir Breiðabóstaðarprestakalli og var hún því einungis nokkurra mánaða
gömul þegar fjölskyldan flutti frá Laufási hingað að Breiðabólstað en ég hygg
að það hafi verið laust eftir fardaga að vori árið 1927. Þannig má segja að
Ragnhildur hafi alið allan sinn aldur hér á Breiðabólstaðartorfunni ef frá eru
talin menntaskólaárin hennar norður á Akrueyri.
Hér á Breiðabólstað ólst Ragnhildur upp í faðmi góðra, velmegandi og
menntaðra foreldra. Hún var elst fjögurra systkina en hin eru þessi í aldursröð:
Sváfnir, f. 1928, kvæntur Ingibjörgu Halldórsdóttur, fyrri kona hans var Anna
Elín Gísladóttir sem lést 1974, Elínborg, f. 1931, gift Guðmundi Sæmundssyni
og yngst er Asta, f. 1939, ekkja eftir Garðar Steinarsson sem lést á s.l. ári.
Eftir að Ragnhildur lauk skyldunámi sínu tóku þau Sváfnir bróðir
hennar stefnuna á Menntaskólann á Akureyri. Það ráðslag hefur áreiðanlega
þótt við hæfi enda aðeins 16 mánuðir á milli þeirra systkina, næstum eins og
tvíburar, og bæði góðir námsmenn. Saman útskrifuðust þau svo með fyrstu
einkunn á stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri þjóðhátíðardaginn 17.
júní 1948 eða fyrir réttum 60 árum.
Ragnhildur var fögur kona og fönguleg, vinsæl og vel gefin og hef ég
fyrir satt að margur ungherrann þar nyrðra hafi haft á henni augastað til
kvonfangs. Það var þó ekki fyrr en í Reykjavík, hvar hún starfaði í skamman
tíma við skrifstofustörf eftir stúdentspróf, að nánari kynni tókust með henni og
gömlum skólafélaga úr MA, Húsvíkingnum Jóni Kristinssyni. Honum tókst
það sem margur annar hafði látið sig dreyma um og gengu þau upp að altarinu
hér í Breiðabólstaðarkirkju hinn 1. janúar 1950 og voru gefin saman af föður
brúðarinnar, sr. Sveinbirni Högnasyni.
Jón eða Jóndi, eins og mér finnst hann heita fullu nafni, fæddist á
Húsavík 16. nóv. 1925, sonur Kristins Jónssonar kaupmanns þar og konu hans
Guðbjargar Óladóttur húsfreyju. Jóndi er löngu landskunnur myndlistarmaður
og frumkvöðull í íslenskri auglýsingateiknigerð sem væntanlega kallast grafísk
hönnun nú til dags.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau Ragnhildur og Jóndi á Breiðabólstað
en í kringum 1955 höfðu þau byggt nýbýlið Lambey út úr Breiðabólstaðar-
jörðinni og áttu þar heimili sitt alla tíð síðan. Þar byggðu þau upp myndarlegt
154