Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 22

Stjörnur - 10.01.1950, Qupperneq 22
gripið um axlir henni, þéttings- fast, sterkum karlmannshöndum: — Ekki að flýja, hvíslaði mild rödd í eyra henni. Það var rödd- in úr símanum. Undarlegt að hún skyldi ekki strax þekkja hana. Eg veit hver þér eruð, sagði tón- skáldið. Vivianna hefur með vilja valið okkur sæti hvoru við annars hlið. Hún hringdi líka í skrifstofuna þar sem þér unnuð og fékk að vita alltsaman. Það var leiðinlegt að heyra að lagið mitt skyldi verða yður svona til ófarnaðar. — Nei, það hefur einmitt gert mig svo hamingjusama, sagði Lísa. En nú hafið þið haft mig fyrir ginningarfífl. Ég sem hélt að höfundurinn væri óþekktur og fátækur. — Við kunnum vissulega að meta hvað þér hafið gert. Haldið þér að nafnkunnir menn þarfnist ekki eins og aðrir samúðar og skilnings. Og þér hafið einmitt sýnt með breyttni yðar að þér er- uð góð stúlka — og auðvitað hlutuð þér líka að vera ung og fögur og saklaus. Hann lækkaði enn rödd sína: Og nú skuluð þér verða heiðursgestur minn í kvöld. — Mér skilst ekki að ég hafi gert yður nokkurn greiða með af- skiptasemi minni, svaraði Lísa og var nú loks að komast til sjálfrar sín. — Það er að vísu satt, hélt Kurt Wíberg áfram, að ég náði tah af Víviönnu sama kvöldið og þér, og ef til vill hefði hún tekið lag'ið mitt í revyuna, án yðar tilhlutunar. En hún hefði áreiðanlega ekki skipað því svo virðulegan sess sem hún gerði nú, hefði hún ekki orðið svo hrifin af áhuga yðar. Og það er heldur ekki víst, að hún hefði sungið það eins dásamlega vel og hún gerði, ef þér hefðuð ekki komið til sögunnar. Einmitt þess- vegna vil ég fagna þessum mikla sigri mínum í kvöld, og nú bið ég yður að verða hjá okkur og dansa við mig — alla nóttina, unz dagur rennur. — En á morgun, stundi Lísa og hugsaði til hins hversdagslega raunveruleika, sem þá beið hennar. — Á morgun ,sagði hann glað- lega, þá skín sólin á ný. Hún leit upp og mætti augum hans. Hún gat þá ekki lengur ef- ast um að hann sagði satt. Á morgun myndi sólin skína á ný. ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ * * Claude Jarman, hinn ungi, sem fyrir nokkrum árum var vin- sæll sem kvikmyndadrengur er nú að verða fullorðinn og maður með mönnum. Hann hefur nú fengið sitt fyrsta karlmannshlut- verk og leikur ungan Bandaríkja- hermann í stríðinu um Þýzkaland. 22 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.