Víðförli - 01.09.1947, Side 5

Víðförli - 01.09.1947, Side 5
i'RÁ KIRKJUÞINGINU í LUNDI 131 og samþykktur með smá orðabreytingum, sem elcki er kostur að gera grein fyrir fyrr en hin prentuðu gögn liggja fyrir. Ritgerð þessi er: T. Inngangur um það, hvar og hvernig mannkyn vorra flaga er statt, 2. Um Guðs orð, 3. Um sakramentin, 4. TJm kirkjuna. Hér fara á eftir þýðingar á nokkrum helztu atriðum ritgerðar þessarar. 1. Fagnaðarerindið um verk Guðs i Kristi. „Kynslóð vor hefur reynt framar nokkurri annari hversu mannkynið, er það snýr baki við Guði, tætir sig til agna og gefur sig á valcl sjálfseyðingu. Ritningarnar segja: „Þar sem þeir hafa ekki, þótt þeir þekktu Guð, vegsamað hann eins og Guð, né þakkað honum, hcldur gjörst hégómlegir í hugs- unum sínum, og hið skynlausa hjarta þeirra hjúpast myrkri“. „Og eins og þeir hirtu ekki um að varðveita þekk- inguna á Guði, ofurseldi Guð þá ósæmilegu hugarfari, svo að þeir gjörðu það, sem ekki er tilhlýðilegt (Rom 1,21, 28). Kynslóð vor hefur reynt raunveruleik þessara orða af beiskri reynslu. Vér vitum, hvað það er að heyra til mann- kyni, sem af Guði er til þess dæmt að vera selt undir bölvan dauðans og drottnan. Sjálfir erum vér meðlimir þessarar kynslóðar. Orlög hennar eru örlög vor. Enginn af oss get.ur staðið fyrir utan sem óháður þessum örlögum. Synd henn- ar og sársauki er synd og sársauki vor. Vér játum Guði sameiginlega synd vora og meðtökum sameiginlega dóm hans“. „En, Guði sé lof, vér heyrum ekki aðeins hinu gamla mannkyni til, sem lifir í böndum syndar og dauða. Guð gaf kyni voru nýtt upphaf, er hann gaf oss Krist sem Drottin og höfuð hins nýja mannkyns. Hann hefur veitt oss þá náð að vera limir Krists og hluttakendur lífs hans. Hans eilífa liós skín gegnum rnyrkur þessa heims. Mitt í þrengingum og

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.