Víðförli - 01.09.1947, Side 9

Víðförli - 01.09.1947, Side 9
FRÁ KIRKJUÞINGTNU í LUNDI 135 (2. Kor. 5,20) og söfnuðurinn verður að meðtaka boðskap- inn eins og Guðs eigið orð, sem hann og vissulega er. (1. Þess. 2,13, Matt. 10,40). Þjónustu orðsins hefur verið falið hið mikla og undursamlega verk að prédika ráðvilltum og þrælkuðum heimi, ekki mannlegt hugsanakerfi eða „spak- legar upp spunnar sögur“ heldur Guðs eigin boðskap uin mátt og dýrð Drottins Jesú Krists (2. Pét. 1,16) og hversu hann hefur verið af Guði settur sem drottinn vor og konung- ur í ríki friðarins, sem stofnað er fyrir friðþægingardauða hans og upprisu. (Róm. 10,15; Jes. 52,7). 3. Sakramentin. AI' ríkdómi náðar sinnar flytur Guð oss gleðiboðskapinn með ýmsu móti, ekki einungis í orðinu heldur og gegnum hin heilögu sakramenti, skírn og kvöldmáltíð. Þegar þessar athafnir eru taldar sakramenti er þar með sagt, að þær snerti meðalgöngu Krists íyrir oss, en ekki nein verk, fram- kvæmd eða fórn af vorri hálfu. Sakramentin byggjast á stofnun Krists sjálfs, og það sem fram fer í þeim er, að Kristur gegnum þau sameinar oss sér og gerir oss að lifandi limum á líkama sínum, kirkjunni. Hin grundvallandi sameining (innlimun) við Krist verður í skírninni. Samkvæmt náttúrlegri fæðingu vorri heyrum vér undir eðli og drottinvakl syndarinnar og' dauðans. Að eðli til erum vér meðlimir syndugs mannkyns og gjörvölll vera vor er undirlögð ástandi þess. Gegnum skírnina erum vér settir í gjörsamlega nýja afstöðu. Vér verðum meðlim- ir hins nýja mannkyns, þar sem Kristur er höfuðið, og sem gegnum hann verður hluttakandi í réttlæti Guðs og lífi hinnar komandi aldar. Af þeirri ástæðu er skírnin nefnd „bað hinnar nýju fæðingar“, því í henni fæðumst vér til hinnar nýju tilveru, sem oss er af Guði veitt fyrir Krist. Vér verðum limir líkama Krists í samhljóðan við orð Páls post-

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.