Víðförli - 01.09.1947, Síða 10

Víðförli - 01.09.1947, Síða 10
ula: „Því að með einum anda vorum vér allir skírðir til eins líkama“. (1. Ivor 12,13)------- En skírnin er ekki aðeins inntökuathöfn. Hún tekur yfir gjörvallt hið kristna líf, líf, sem er sí-endurtekin deyðing með Kristi og upprisa með honum. Með því móti einu getur hinn kristni maður haldið áfrarn að vera lifandi limur á Kristi, eins og hin lifandi grein á hinurn sanna vínviði (Jóh. 15,1) fyrir trúna. Kristur hefur dáið syndinni einu sinni (Róm. 6,10). Sá, sem heyrir til líkama hans verður því að devja „líkama syndarinnar“ (Rom. 6,6), sem vér heyrum til fyrir Adam, þ. e. fyrir samhengi vort við hinn gamla mann. Þann- ig verður líf hins kristna stöðug deyðing hins garnla manns (Róm 6,6.) og stöðug upprisa með Kristi til lífs í réttlæti. Þannig svarar Lúther réttilega spurningunni um þýðingu skírnarinnar með þessum orðum: „Hún merkir, að hinn gamli Adam í oss á að drekkjast og deyja fyrir daglega iðrun og yfirbót ásamt öllum syndum og vondum girnd- um, og aftur á móti fram að koma og upp aftur að rísa nýr maður, sá, er lifir að eilífu í réttlæti og hreinleika fyrir Guði“. Eins og umskurnin var meðlimatákn hins gamla sáttmála, sem Guð hafði sett milli sín og síns lýðs Israels, þannig er skírnin tálcn hins nýja sáttmála, sem guð hefur sett milli sín og vor. Þar eð kirkja vor lítur jafnan á náðina sem náð að fyrrabragði, kennir hún að börnum beri að veita skírn. (Sbr. Mk. 10,14) Frá skírnarstundinni allt til dauðastund- arinnar á hinn skírði að lifa í Kristi, sameinaður honum. Þar sem þessi tengiliður við Krist hefur verið brotinn með synd og vantrú er skírnarsáttmálinn samt í gildi af Guðs hálfu og kallar stöðugt á manninn að hverfa aftur til skírnarnáðarinnar fyrir iðrun og yfirbót og lífs í Kristi. Þess vegna felst einnig í skírninni fyrirheit um hluttölcu í eilífri dýrð Krists, þegar líkami syndarinnar og dauðans er endanlega að engu gerður. Skírnin er athöfn í eitt skipti fyrir öll, sem tengir gervallt

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.