Víðförli - 01.09.1947, Page 11
FRÁ KIRKJUÞINGINU í LUNDI
137
líf vort við Krist, en lieilög lcvöldmáltíð hefur verið gefin
oss til þess að Kristur gegnum hana skuli stöðugt uppbyggja
og endurnæra þá, sem eru limir líkama hans. Eins og pásk-
arnir voru haldnir til minningar urn það Guðs verk að leiða
Israel út úr Egiptalandi og grundvalla þannig hinn gamla
sáttmála, svo höldum vér og kvöidmáltíð Drottins til minn-
ingar um grundvöllun hins nýja sáttmála, sem settur var
fyrir fórnardauða Krists. (Sbr. 1 Kor. 11,25, 26).
Þegar heilög kvöldmáltíð er nefnd minningarmáltíð má
ekki leggja þá merkingu í það, að aðeins sé um að ræða
hátíðlega minningu dauða Krists. Meginatriði heil. kvöld-
máltíðar er það, að Kristur sjálfur er nálægur með líkama
sínum og blóði til að uppbyggja líkama sinn, kirkjuna.
(1. Kor. 11,24). Þar gengur hinn kristni inn í beint samband
við sinn lifandi Drottin. Því kallast brotning brauðsins og
„samfélag um líkama Krists“. (1. Kor. 11,24)“.--------
ý. Kirkjan.
„Kristur og kirkja hans heyra óaðskiljanlega saman.
Kirkjan er líkami Krists og Kristur er höfuð kirkjunnar.
Kristur uppbyggir kirkju sína fyrir heilagan Anda og þefta
verk gerist gegnum Qrðið og Sakramentin. Kirkjan er til
staðar hvar sem fagnaðarerindið er afdrátjarlaust prédik-
að og sakramentin réttilega um hönd höfð. (Agsbj. 7). Því
Kristur er sjálfur nálægur í orðinu og sakramentunum og
kirkjan er þar sem Kristur er. Kirkjan er „samfélag heil-
agra“, ekki í þeim skilningi að meðlimir hennar séu heil-
agir eða heilögum líkir frá siðferðilegu sjónarmiði séð,
né heldur í þeim skilningi, að þeir séu „fullkomnir“, en kirkj-
an er kölluð „sanrfélag heilagra“ af því að Kristur er höf-
uð hennar og heilagleiki og af því að heilagur andi hans
er starfandi í henni til helgunar meðlimum hennar. XJndir-
staða starfsemi hennar er sú þjónusta, sem Guð hefur stofn-