Víðförli - 01.09.1947, Page 13
FRA KIRKJUÞINGTNU I LUNDI
139
undirstaða og kraftalynd allra verka kristinna manna og
allrar starfsenri kirkjunnar.
Þýðingarmesta verk þessa kirkjuþings var að stofna alls-
herjar samband lútherskra kirkna og setja því lög.
Tilgangur sambandsins er sá, að kirkjurnar vinni saman
og styrki hver aðra, án þess að sambandið blandi sér í sér-
mál kirknanna að öðru leyti, og að gera þær sameinaðar
öflugri í hinu milda hlutverki að flytja syndsjúku og ráð-
þrota mannkyni boðskapinn um náð Guðs í Kristi, gera
það hluttakandi. í kröftum hinnar komandi aldar og innlima
það í friðarríki Guðs.
Islenzk kirkja má fagna því að vera meðlimur þessa sam-
bands, því það mun á margan hátt, beint og óbeint, verða
henni styrkur og leiða hana út úr þeirri einangrun, sem
hún hefur lifað í, síðan siðaskiptin slitu hana úr sambandi
við hina almennu kirkju.