Víðförli - 01.09.1947, Qupperneq 15
ÞJÓÐKIRKJA ÍSLANDS
141
Þegar gera skal fræðilega grein fyrir hugtakinu „evangelisk-
lúthersk kirkja“, verður fyrst fyrir að benda á vissar grundvall-
arheimildir um þau áherzluatriði í trúarskilningi, trúarafstöðu
og kenningu, sem einkenna þessa kirkjudeild, ollu því, að hún
varð til, og réttlæta, að hún er til sem sérstök deild hinnar al-
mennu kristni, heimildir, sem viðurkenndar eru og hafa verið af
öllum ev.-lúth. mönnum í öllum löndum sem leiðsögurit um
skilning og boðun kristindóms.l) Þessar heimildir eru einkum:
Agsborgarjátningin og Fræði Lúthers hin minni, hin sérstöku
játningarrit evangelisk-lútherskrar kirkju. Þau eru viðurkennd
af öllum ev.-lúth. mönnum, en sums staðar hafa nokkur fleiri
rit frá siðbótartímanum verið sett á bekk með þeirn.
Iívaða gildi hafa nú þessi rit?
Þau eru ómetanlegur leiðarvísir um meginsjónarmið lúthersku
siðbótarinnar. Fræðin eru að flestra dómi eitt innb'lásnasta
verk kirkjusögunnar. Þar talar siðbótarfrömuðurinn við börn-
in um kristilegan skilning á lögmáli Guðs, bendir á, hví'lík auð-
legð er tileinkuð þeim, sem trúir á þríeinan Guð, vísar til veg-
ar í heimi bænarinnar með Faðirvorið að leiðarsteini, skýrir
sakramentin. Asborgarjátningm er guðfræðileg ritgerð (hvorki
hún né Fræðin er réttnefnd játning), frábær heimild um það,
hvað rómverskum mönnum og evangelískum bar á milli og hve
langt evangelískir menn gátu framast gengið til samkomulags
við rómverska.
Margt er í þessu riti rætt, sem ekki er dagskrármál nú á
tímum eða hér á íslandi eins og sakir standa, og engum er í
kristinni kifkju gert að taka afstöðu til mála, sem ekki eru brýn
á líðandi stundu og ekki snerta sjálfa líftaug trúarinnar. Hverj-
um degi nægir sín þjáning. Þau orð eiga vissulega líka við hér.
Kristin kirkja játar aldrei út í bláinn, heldur út frá fyrirliggj-
andi viðhorfum. Þannig hafa játningarnar skapazt. Og not
þeirra og gildi helgast-af þessu. Ýmislegt í Ágsborgarjátningunni
1) Sbr. alfræðibókin Encyclopedia Britannica: „The Augsburg Confession
and Luther’s Short Catechism may therefore be said to contain the distinc-
tive principles which all Lutherans are bound to maintain“.